Lögreglufulltrúi hafður fyrir rangri sök og vikið frá störfum – rakið til orðróms meðal brotamanna og „persónulegs ágreinings“

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara telur að til­hæfu­lausar ásak­anir á hendur lög­reglu­full­trúa, sem vikið var frá störfum með ólög­mætum hætti í jan­úar, eigi rætur að rekja til sam­skipta­örð­ug­leika í fíkni­efna­deild, „orðróms meðal brota­manna“ og jafn­vel per­sónu­legs ágrein­ings.

Hér­aðs­sak­sókn­ara virð­ist sem alvar­legar ásak­anir á hendur lög­reglu­full­trúa, sem vikið var frá störfum með ólög­mætum hætti í jan­úar, eigi rætur að rekja til sam­skipta­örð­ug­leika í fíkni­efna­deild, orðróms meðal brota­manna og jafn­vel per­sónu­legs ágrein­ings innan lög­regl­unnar. 

Þetta kemur fram í rök­stuðn­ingi hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir þeirri ákvörðun emb­ætt­is­ins að fella niður rann­sókn á máli lög­reglu­full­trúa í fíkni­efna­deild sem sak­aður hafði verið um óeðli­leg sam­skipti við brota­menn. Stundin hefur undir höndum stytta útgáfu af nið­ur­fell­ing­ar­bréf­inu en nið­ur­staða hér­aðs­sak­sókn­ara er mjög afger­andi.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Full­yrðir hér­aðs­sak­sókn­ari að eftir ítar­lega rann­sókn – þar sem meðal ann­ars voru teknar skýrslur af 29 vitnum og tveimur mönnum með rétt­ar­stöðu sak­born­ings – liggi fyrir að ekk­ert hafi komið fram sem renni stoðum undir það að lög­reglu­full­trú­inn hafi með neinum hætti gerst brot­legur í starfi. 

Að sama skapi hefur inn­an­rík­is­ráðu­neytið, eins og Stundin hefur áður greint frá, kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að með því að víkja lög­reglu­full­trú­anum frá störfum hafi lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, farið á svig við með­al­hófs­reglu stjórn­sýslu­réttar enda hafi ákvörð­unin byggt á orðrómi og ásök­unum en ekki rann­sókn­ar­gögnum. 

Rannsóknin umfangsmikil

Máli lög­reglu­full­trú­ans var vísað til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara þann 8. jan­úar síð­ast­lið­inn og hófst þá viða­mikil og ítar­leg rann­sókn. Skoðuð voru gögn frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og rík­is­sak­sókn­ara en jafn­framt tölvu­grunnar og sam­eig­in­legt drif fíkni­efna­deildar. 

„Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var sú að ekki væri neitt athuga­vert við skrán­ingar í kerfin og ekk­ert sem benti til þess að brot hafi verið framin í tengslum við upp­lýs­inga­að­ila,“ segir í nið­ur­stöðu hér­aðs­sak­sókn­ara.

„Þá var fengin heim­ild hjá kærða til að skoða tölvu­póst hans hjá LRH og var tölvu­póstur skoð­aður með sér­stöku leit­ar­for­riti þar sem leitað var að nánar til­greindum nöfnum og orðum sem tengsl höfðu við málið. Nið­ur­staðan á skoðun á tölvu­póst­inum er sú að ekk­ert þar renni stoðum undir að kærði hafi gerst brot­legur í störfum sínum.“ 

Ólafur Þór Hauksson
Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari

Greint er frá því að sak­sókn­ara­emb­ættið hafi óskað eftir upp­lýs­ingum frá bönkum og fjár­mála­stofn­unum að fengnu sam­þykki kærða og eig­in­konu hans. Ekkert athuga­vert hafi þar komið fram. 

„Við rann­sókn máls­ins var farið ítar­lega yfir öll þau 22 til­vik sem til­greind höfðu verið sem óeðli­leg af hálfu kærða í starfi hans. Nið­ur­staðan var sú að í ein­hverjum til­vikum var ein­göngu um að ræða vanga­veltur ein­stakra starfs­manna um óeðli­leg vinnu­brögð sem enga stoð virt­ust eiga í gögnum, í öðrum til­vikum lágu fyrir gögn sem sýndu að vinnu­brögð kærða voru full­kom­lega eðli­leg þrátt fyrir fram­burð sam­starfs­manna um annað og loks voru til­vik nefnd sem gögn sýndu að kærði hafði enga aðkomu haft af.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Valdatafl í lögreglunni

FréttirValdatafl í lögreglunni

Rann­sóknir fíkni­efna­mála í lama­sessi og mið­læga deildin sögð „gjör­sam­lega í molum“

Lítið er um frum­kvæð­is­rann­sóknir og lög­reglan ræður ekki lengur við umfangs­mikil fíkni­efna­mál. „Óstarf­hæft“ og „hand­ó­nýtt batt­erí“ eru dæmi um ein­kunnir sem lög­reglu­menn gefa vinnu­staðnum. Yfir­maður mið­lægu deild­ar­innar hættir og hverfur aftur til fyrri starfa hjá sér­sveit­inni.

21 mín. lestur

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár