Var mótfallin 14 prósenta vaski á ferðaþjónustu en vill nú 24 prósent

Ný ríkis­stjórn afsalaði sér milljarða skatt­tekjum frá ferða­þjónustunni með því að falla frá hækkun virðis­aukaskatts upp í 14 prósent. Viðhorfs­breyting hefur orðið hjá formanni fjár­laganefndar.

Vigdís Hauks­dóttir, formaður fjár­laganefndar Alþingis, vill að virðis­aukaskattur á ferða­þjónustu verði hækkaður upp í efra þrep, eða í 24 prósent. Árið 2013 greiddi hún hins vegar atkvæði með því að fallið yrði frá hækkun virðis­aukaskatts á ferða­þjónustu upp í miðþrep, 14 prósent. Rökin á bak við laga­breytinguna voru þau að hækkun myndi hafa slæm áhrif á eftir­spurn í atvinnu­greininni, flækja kerfið og skaða ferða­þjónustu­fyrirtæki.

Virðis­aukaskattur á ferða­þjónustu er nú 11 prósent, eftir að núverandi ríkis­stjórn hækkaði lægsta þrep skattsins úr 7 prósentum, þar með talin matvæli. 

Í viðtali við Vigdísi Hauks­dóttur í Frétta­blaðinu um helgina segist hún vera talsmaður þess að hugað verði að því að afnema ívilnanir í ferða­þjónustu, enda þurfi nú að „hugsa málin upp á nýtt“ í ljósi þess að ferða­þjónustan sé orðin „svipað stór í veltu og sjávar­útvegurinn“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár