Samfélagið í menntaskólanum var eins og þvingað hjónaband

Gunnlaugur Ástgeirsson kennari heldur ennþá tengslum við bekkjar­félaga sína í Mennta­skólanum á Laugar­vatni rúmum fjórum áratugum eftir útskrift.

Heldur upp á 40 ára kennaraafmæli í haust
Heldur upp á 40 ára kenn­ara­af­mæli í haust Gunn­laugur er íslensku- og sögu­kenn­ari og seg­ist hafa notið þess að geta stundum farið á bak við atburð­ina í nútím­anum og kannað þá.

Á svona litlum heimavistar­skóla eins og Mennta­skólanum á Laugar­vatni kom fólk á haustin, skrapp kannski heim um jólin, en var annars fram að vori, þannig að það þurfti að búa til sínar eigin skemmtanir og allt sitt þar. Samfélagið var mjög afmarkað og lokað, þannig að það varð mjög þétt og allir þekktust mjög vel.

Ég hef stundum líkt þessu við þvingað hjónaband þar sem fólk hefur engan kost annan en að vera saman ef það vill komast af í sínu umhverfi. Þegar ég kynntist síðan fólki sem hafði verið í skólum í Reykjavík, eins og Kennara­skólanum og MR, þá skyldi ég ekki alveg strax að það var ekki jafn nátengt og við vorum.

Þessi tengsl hafa haldist mjög mikið því þau voru ótrúlega sterk, og það er ennþá hópur fólks sem hittist reglulega. Það voru eitthvað um 120 nemendur þegar ég var þar, og lengst af voru í mínum bekk tæplega 50 en enduðu með því að vera 34 sem kláruðu. Það er allt annað en þeir 12–1.300 sem eru í Hamrahlíð þar sem ég kenni, en ég held upp á 40 ára kennara­afmæli mitt þar í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár