Auðlindarentan yrði 7 milljarðar

Raforku­fyrirtæki á Íslandi þyrftu að greiða um það bil 7 milljarða króna á ári í skatt ef auðlind­arenta yrði tekin að norskri fyrirmynd. Á síðastliðnum árum hafa skattar og gjöld á auðlindir lækkað mikið á meðan álfyrirtæki hafa flutt út milljarða króna skatt­frjálst með fléttum.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra
Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra Í emb­ætti fjár­mála­ráð­herra afnam Bjarni raf­orku­skatt­inn sem færðu rík­is­sjóði um 1,6 millj­arða króna á ári. Mynd: Pressphotos

Raforku­fyrirtæki á Íslandi þyrftu að greiða 7 milljarða króna skatt af auðlindarentu á ári til ríkis­sjóðs ef skattlagt yrði samkvæmt norskri fyrirmynd hér á landi. Þetta kemur fram í svari Benedikts Jóhannessonar, fjármála- og efnahags­ráðherra, við fyrir­spurn Oddnýjar G. Harðar­dóttur á nýafstöðnu þingi.

Sérstaki auðlindarentu­skatturinn á raforku­fyrirtæki í Noregi er 34,3 prósent af sérstökum skatt­stofni sem reiknaður er fyrir hverja virkjun fyrir sig. Þá er hann aðeins lagður á þær virkjanir sem eru með uppsett afl meira en 10 þúsund kílóvött. Benedikt áréttar í svari sínu að 7 milljarða talan sé fengin með grófri nálgun og sé háð ýmsum fyrir­vörum og óvissu­þáttum.

Lægri raforkuskattar hagnast álfyrirtækjum

Á Íslandi var sérstakur raforku­skattur afnuminn árið 2015. Skatturinn var fyrst settur á árið 2009 og átti að vera til þriggja ára. Hann var fram­lengdur árið 2012 um þrjú ár þangað til að Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármála­ráðherra, tilkynnti árið 2015 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár