Vísbendingarnar sem leiða að hamingjunni

Eitt af því sem gerir það að eldast svo fallegt, að mati Höllu Ólafs­dóttur, frétta­manns RÚV á Vestfjörðum, er að smám saman söfnum við vísbendingum um það sem stuðlar að eigin hamingju. Svo sé reyndar allt annað mál að kunna að fylgja þeim.

Halla eða Palla?
Halla eða Palla? Halla Ólafs­dóttir á sér hlið­ar­sjálfið Pöllu, sem lætur ekki sjá sig nema þegar Halla hefur ræktað garð­inn sinn. Palla sé grall­ari sem gleymi aldrei að leika sér og taki sjálfa sig ekki alvar­lega.

Eitt af því fyrsta sem kemur upp í huga Höllu Ólafs­dóttur, þegar hún er spurð að því hvað hún geri til að öðlast og viðhalda hamingju í lífi sínu, er hreyfingin. „Hreyfing er undra­meðal. Í algjöru máttleysi, þegar heimurinn er að fara til fjandans og ég veit ekki enn hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór, þá er ótrúlegt hvað lítill hringur á hlaupum getur gert. Ég er svo mikið hross, það þarf að spretta af mér öðru hverju til að losa um orkuna, sem annars getur snúist upp í hringa­vitleysu í huganum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita hamingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finnist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki hamingjan að vera alltaf einhvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregðast við ef það finnur fyrir óhamingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlutina. Fjall­göngur hjálpuðu Jóhönnu Fríðu í kjölfar sambands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem farar­stjóri í aukavinnu.
Hamingjan

„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Friðriks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um árabil var hún skotspónn bekkjar­félaga sinna og upplifði sig eina þótt hún ætti vinkonur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við tilfinninga­doðann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risastórt og ótrúlega ógnvænlegt skref,“ segir Ingileif sem er nú hamingju­samlega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár