Brexit-samkomulag milli Evrópusambandsins og Breta í höfn

Samkomulag hefur náðst um útgöngu Bretlands úr Evrópu­sambandinu, og getur þá næsti hluti samninga­viðræðna hafist, segir Financial Times. Þar verður vikið að því hvernig sambandi Bretlands og Evrópu­sambandsins verður háttað.

Theresa May, forsætis­ráðherra Bretlands, og Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins, hafa náð samkomu­lagi um greiðslur sem Bretar þurfa að greiða vegna útgöngu úr Evrópu­sambandinu og einnig náð samkomu­lagi um fleiri atriði, eins og hvernig réttindi fólks frá Evrópu­sambands­ríkjum í Bretlandi, og Breta í Evrópu, verða tryggð. Hópurinn telur um fjórar milljónir manna.

Frá þessu er greint á vef Financial Times, en kostnaður sem nefndur er einhvers konar útgöngu­greiðsla er 40 til 60 milljarðar evra, eða sem nemur um 5 til 7.300 milljörðum króna. Mikil andstaða hefur verið meðal Brexit-sinna við því að verða við þessum kröfum ESB, en svo virðist sem Theresa May hafi fallist á að Bretar greiði þetta fyrir að komast úr sambandinu.

Líklegt má telja að þetta verði umdeilt í flokki hennar, Íhalds­flokknum.

Maraþon­fundir hafa verið undan­farna daga milli samninga­nefnda Breta og Evrópu­sambandsins, en May hefur lagt kapp á að ljúka viðræðum um útgöngu­kostnaðinn, og fleiri atriði, sem fyrst, svo það sé hægt að byrja viðræður um hvernig viðskipta­sambandi Evrópu­sambandsins og Bretlands verður háttað í fram­tíðinni. Þar eru stærstu hags­munirnir sem þarf að ná samkomu­lagi um.

Eins og fram hefur komið hefur May þegar lagt það fram í lagatexta, að Bretar verði komnir úr Evrópu­sambandinu 29. mars 2019 klukkan 23:00.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár