29. mars 2019 klukkan 23:00 verður Bretlandi ekki hluti af ESB

Nákvæm tíma­setn­ing á útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu er gefin upp í Brexit-frum­varpi. Þetta er gert til að flýta útgöngu­ferl­inu sem allra mest, segir Theresa May.

„Enginn ætti að efast um stað­festu okkur.“ Þetta segir Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, í grein í The Tel­egraph í dag, og vísar til þess að Bretland muni ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu, og eng­inn þurfi að efastum annað.

Í frum­varpi sem lagt hefur verið fram í breska þing­inu er það nefnt sér­stak­lega að Bretland verði farið úr Evr­ópu­sam­band­inu 29. mars 2019 klukkan 23:00.

Í grein sinni seg­ist hún ætla að tryggja að Bretland muni ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu með besta mögu­lega hætti, og að hags­munir verði tryggðir við útgöng­una.

Hún seg­ist vilja halda góðu og sér­stöku sam­bandi við Evr­ópu­sam­bandið, en á for­sendum Bret­lands.

Í Vís­bend­ingu, sem kemur til áskrif­enda í dag, er ítar­lega fjallað um Brexit, en í næstu þremur útgáfum mun Árni Páll Árnason, fyrr­ver­andi ráð­herra, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og þing­maður, sem nú starfar sem ráð­gjafi, fjalla ítar­lega um helstu álita­málin sem skipta máli þegar kemur að Brexit.

Hægt er að gera áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár