Gjá milli Bjarna og Benedikts: Tala í kross í erlendum fjölmiðlum

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra slær hugmyndir Benedikts Jóhann­es­sonar um fasttengingu krónunnar við annan gjald­miðil út af borðinu í viðtali við Bloomberg.

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra segir að fasttenging krónunnar við evru eða pund sé ekki á döfinni þrátt fyrir orð Benedikts Jóhannessonar fjármála­ráðherra um að slíkt sé til skoðunar. Þetta kemur fram í frétt Bloomberg í dag þar sem rætt er við forsætis­ráðherra. 

Haft var eftir fjármála­ráðherra á vef Financial Times í gær að til skoðunar væri að tengja íslensku krónuna við annan gjald­miðil. Fram kom að honum þætti „absúrd“ að tengja krónuna við Kanada­dollara eða norsku krónuna, enda hafi gengi þeirra gjald­miðla fallið meðan íslenska krónan hafi styrkst umtals­vert síðustu mánuði. Hins vegar mætti skoða valkosti á borð við að tengja krónuna við evru eða pund. Ríkjandi ástand í myntmálum væri óþolandi og breytinga þörf. Í viðtali við Bloomberg frétta­stofuna í dag hafnar Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra því alfarið að fasttenging krónunnar við annan gjald­miðil sé á döfinni. 

Athygli vekur að fyrirsögn fréttar Financial Times er “Iceland weighs plan to peg krona to another currency” en fyrir­sögnin hjá Bloomberg frétta­stofunni er “Iceland Won’t Peg Currency for the Foreseeable Future, PM Says”. Þá segir í frétt Bloomberg að Bjarni hafi lagt áherslu á kosti fljótandi gengis sem heppilegs fyrir­komulags til að hjálpa hagkerfum að aðlagast breyttum aðstæðum. Þetta bendi til þess að orð Benedikts Jóhannessonar fjármála­ráðherra endur­spegli ekki sjónarmið yfirmanns hans, forsætis­ráðherrans (orðrétt: “suggesting the finance minister’s comments don’t necessarily reflect the views of his boss”). 

Í viðtalinu við Bloomberg bendir Bjarni á að nefnd ríkis­stjórnarinnar um endur­skoðun peninga­stefnunnar leggi það til grund­vallar vinnu sinni að íslenska krónan verði gjald­miðill Íslands um fyrir­sjáanlega framtíð. 

Í viðtali við Benedikt Jóhannesson sem birtist á Eyjunni í dag segist hann bjartsýnn á að fram náist breytingar á fyrir­komulagi peninga- og gjaldmiðils­mála. „Já, ég er bjartsýnn á það. Við vorum að skipa nefnd um umgjörð peninga­stefnunnar. Hún mun vinna með sérfræðingum innanlands og utan að því yfirlýsta markmiði að finna leið til þess að auka gengis­stöðugleika. Ef þetta er mögulegt þá finnur þessi hópur leið.“ Í sama viðtali segir hann vel hægt að hugsa sér tengingu krónunnar við aðra mynt eða myntkörfu. Það er ekki í boði að sögn Bjarna.

Athygli vakti þegar ný ríkis­stjórn var mynduð í janúar að málefni Seðla­bankans voru færð úr fjármála­ráðuneytinu yfir í forsætis­ráðuneytið. Í kosninga­baráttunni hafði Viðreisn lagt mikla áherslu á mynt- og peningamál og annað sem snertir Seðla­bankann með beinum hætti. Við stjórnar­myndunina komu flokkarnir sér þó saman um að Bjarni Benediktsson færi áfram með þennan málaflokk þrátt fyrir að hann færi yfir í annað ráðuneyti. 

Samkvæmt heimildum Stundarinnar er samband Benedikts Jóhannessonar og Bjarna Benedikts­sonar afar stirt. Þann 13. mars síðastliðinn tókust frændurnir á í þingsal. Benedikt gagnrýndi harðlega hvernig staðið var að aflands­krónu­uppboði í fjármála­ráðherratíð Bjarna. Bjarni svaraði gagn­rýninni og sagði um eftirá­speki að ræða. Í síðustu viku sagði Bjarni að hann vildi ekki að fram færi frekari rannsókn á einka­væðingu bankanna upp úr alda­mótunum, en Benedikt lýsti gagn­stæðri skoðun. „Svar mitt er einfalt. Jú, það er ástæða til að ljúka rannsókn á þessu ferli,“ sagði hann á Alþingi. Það hvernig stjórnar­herrarnir tala nú í kross í erlendum fjöl­miðlum er enn ein vísbendingin um að gjá hafi skapast á milli þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár