Segir Trump og Kim Jong Un vera eins og „leikskólabörn“

Utan­ríkis­ráðherra Rússlands segir leiðtoga Banda­ríkjanna og Norður-Kóreu haga sér með heimsku­lega.

Sergei Lavrov og Rex Tillerson, utanríkisráðherrar Rússlands og Bandaríkjanna.
Sergei Lavrov og Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herrar Rúss­lands og Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Sergei Lavrov, utan­ríkis­ráðherra Rússlands, segir Donald Trump Bandaríkja­forseta og Kim Jong-Un, leiðtoga Norður-Kóreu, haga sér eins og „leik­skólabörn“. Hann segir yfir­lýsingar þeirra um stöðu mála á Kóreu­skaga minna á þegar leik­skólabörn eru í léttvægum slags­málum og engin getur stoppað þau af.

Hann segir að það sé ekki hægt að fylgjast með Norður-Kóreu stunda tilraunir með kjarnorku­vopn án þess að gera neitt, en það sé heldur ekki valkostur að stofna til stríðs á Kóreu­skaga.

Lavrov segir að stjórn­málin þurfi að leysa úr deilunni og róa niður ástandið, með virkri umræðu innan öryggis­ráðs Sameinuðu þjóðanna og á vettvangi þeirra. Aðeins þannig sé hægt að stuðla að vitrænum aðgerðum sem dragi úr spennu.

Trump og Jong Un hafa skipst á stóyrtum yfir­lýsingum, í garð hvort annars, að undan­förnu. Þannig gaf Trump í skyn að Jong Un væri veikur á geði og vitstola, á meðan Jong Un sagði orðin sem kæmu frá Trump væru líkt og gelt í hundi.



Mikil spenna er á Kóreu­skaga en í síðustu tveimur flugskeyta­skotum sínum hefur Norður-Kórea skotið flug­skeytum yfir japanskt yfirráða­svæði. Það hefur vakið mikla reiði í Japan, og hefur Shinzo Abe forsætis­ráðherra krafist þess að alþjóða­samfélagið bregðist við af hörku. Í Suður-Kóreu eru virkar heræfingar alla daga, bæði á hafi úti og einnig skammt frá landa­mærum við Norður-Kóreu.

Þá hafa Kínverjar samþykkt að taka þátt í efnahags­legum þvingunar­aðgerðum gagnvart Norður-Kóreu meðal annars með því að hefta banka­viðskipti og fjármagns­flutninga til landsins. Trump hefur krafist þess að þjóðir heims einangri Norður-Kóreu algjör­lega og hefur hótað því að þær þjóðir sem stundi viðskipti við Norður-Kóreu hljóti verra af.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár