Baðlón og 200 herbergja hótel á bökkum Brúarár þarf ekki í umhverfismat

Áformað er að byggja hótel og tvö baðlón á 30 hektara landi Efri-Reykja rétt við Brúará, miðja vegu milli Laugar­vatns og Úthlíðar. Gert er ráð fyrir að meðal­gestafjöldi á dag verði um 1.200 þegar hótelið er fullbyggt.

Hótelið og baðlónin tvö eru fyrirhuguð við Brúará sem er miðja vegu milli Laugarvatns og Úthlíðar.
Hótelið og bað­lónin tvö eru fyr­ir­huguð við Brúará sem er miðja vegu milli Laug­ar­vatns og Úthlíðar. Mynd: Skjáskot

Skipulags­stofnun hefur tekið ákvörðun um að hótel og baðlón á Efri-Reykjum í Bláskóga­byggð skuli ekki háð mati á umhverfis­áhrifum. Stofnuninni barst í fyrra­sumar tilkynning frá verkfræði­stofunni Verkís um fyrir­hugaða framkvæmd. Verkefnið hefur verið í höndum Þróunar­félagsins Reykja ehf.

Áformað er að byggja hótel og tvö baðlón á 30 hektara landi Efri-Reykja rétt við Brúará, miðja vegu milli Laugar­vatns og Úthlíðar. Gert er ráð fyrir að meðal­gestafjöldi á dag verði um 1.200 þegar hótelið er fullbyggt. Framkvæmdin verður áfanga­skipt. Áætlað er að baðlónin tvö verði samtals um 6.000 m² og útbúnar verði um 5.000 m² hreinsi­tjarnir. Hótelið verður um 10.000 m² með allt að 200 herbergi í 16,5 metra hárri byggingu á þremur hæðum að loknum seinni áfanga.

Einnig er gert ráð fyrir um 6.000 m² þjónustu­miðstöð fyrir baðstaðinn sem tengist hótel­byggingunni. Miðstöðin verður mest tvær hæðir auk kjallara. Þá er gert ráð fyrir fimm starfsmanna­húsum alls um 750 m², nýjum malbikuðum vegi að hótelinu frá þjóðvegi og um 200 malbikuðum bíla­stæðum auk sjö stæða fyrir rútur.

Fyrri áfangi kemur til með að fela í sér byggingu þjónustu­húss og hótels með 100 herbergjum auk 1.000 m² náttúru­laugar. Í seinni áfanga verður hótel stækkað um 100 herbergi og byggð 5.000 m² náttúru­laug.

Í gögnum sem framkvæmda­aðili sendi Skipulags­stofnun kemur einnig fram að göngu­stígar innan skipulags­svæðisins verða lagðir í landið til að stýra umferð um svæðið og sérstak­lega til að vernda bakka Brúarár. Umferðar­réttur almennings meðfram ánni verði tryggður.

Áform framkvæmda­aðila tóku breytingum á meðan máls­meðferð Skipulags­stofnunar stóð yfir. Upphaf­lega var gert ráð fyrir að hægt yrði að byggja seinni áfanga baðlóna með klór­hreinsun. Í kjölfar athugasemda umsagnar­aðila hefur nú verið fallið frá þeim áformum.

Auk þess hefur fyrir­hugaðri stað­setningu mann­virkja verið breytt og þau færð lengra frá bakka Brúarár. Einnig hefur fyrir­komulag frárennslis og hreinsunar verið skýrt og útfært frekar.

Brúará er á náttúru­minjaskrá ásamt 200 metra spildu beggja vegna árinnar vegna fossa, fjölskrúðugs gróðurs og fuglalífs og tilkomu­mikils landslags í Brúar­árskörðum. Í gögnum frá framkvæmda­aðila kemur fram að hrossum hafi verið beitt á svæðið um langt árabil sem hafi haldið niðri gróður­vexti, ásamt því sem landið hafi verið ræst fram. Því sé svæðið töluvert raskað.

Framkvæmdirnar muni þó hafa stað­bundin og nokkuð neikvæð áhrif á verndar­gildi árinnar, þrátt fyrir að verndunin byggi einkum á Brúar­árskörðum sem séu fjarri framkvæmdar­svæðinu. Mótvægis­aðgerðir felist í lagfæringum á röskuðum árbökkunum, stýringu gangandi umferðar, friðun fyrir búfjár­beit og eflingu gróðurs á því svæði þar sem ekki verði framkvæmdir.

Vildu framkvæmdina í umhverfismat

Í umsögn Bláskóga­byggðar kemur fram að sveitar­stjórnin telji að framkvæmdin skuli háð mati á umhverfis­áhrifum á grund­velli þess að um sé að ræða svæði á náttúru­minjaskrá sem sé ofarlega á víðáttu­miklu vatna­sviði. Í umsögn Umhverfis­stofnunar segir að um sé að ræða umfangs­miklar framkvæmdir og standist áætlanir muni fjöldi baðgesta verða með því mesta sem þekkist á landinu. Bent er á að mannvirki séu fyrir­huguð við bakka einnar stærstu lindár landsins og að áin hafi sérstakt verndar­gildi á landsvísu sem og alþjóðlegt verndar­gildi.

Fiskistofa bendir í umsögn sinni á að vegna hugsanlegra neikvæðra áhrifa á lífríki Brúarár telji stofnunin eðlilegt að framkvæmdin undir­gangist mat á umhverfis­áhrifum.

Í umsögn Náttúru­fræði­stofnunar Íslands kemur fram að stofnunin hefur lagt til að Laugar­vatn-Apavatn-Brúará verði sett á B-hluta náttúru­minjaskrár. Forsendur tillög­unnar eru vernd ferskvatns­vistgerða, jarðhita­vistgerða og fugla­tegunda. Að mati stofnunarinnar er ekki líklegt að hin fyrir­hugaða framkvæmd valdi umtals­verðum umhverfis­áhrifum að því tilskyldu að farið verði að ýtrustu kröfum um mengunar­varnir og aðra náttúru­vernd og ef byggingar og baðlón verði eins langt frá ánni og mögulegt er.

Svæði þegar raskað að stórum hluta

Niður­staða Skipulags­stofnunar er sú að bygging hótelsins og baðlónanna sé ekki líkleg til að ógna verndar­gildi Brúarfoss eða landslagi í Brúar­árskörðum sökum fjar­lægðar. Framkvæmda­svæði sé þegar raskað að stórum hluta vegna beitar, framræslu og efnisnáms. Þá bendir stofnunin á að ferða­þjónusta og sumar­bústaða­lönd séu þegar á svæðunum í kring og beri lands­lagið einkenni af því. Einnig setji jarðhita­nýting við Efri-Reyki svip sinn á umhverfið með áberandi gufu­stróki. Fyrir­hugað framkvæmda­svæði sé við Laugar­vatnsveg á milli Laugar­vatns og Geysis í Haukadal og töluverð umferð sé nú þegar um veginn.

Að mati Skipulags­stofnunar eru breytt áform og boðaðar mótvægis­aðgerðir til þess fallnar að draga verulega úr mögulegum umhverfis­áhrifum framkvæmdarinnar. Þar vegi þungt fyrir­huguð áfanga­skipting og boðað samráð við Heilbrigðis­eftirlit Suður­lands um mögulega frekari hreinsun á frárennsli á grund­velli vöktunar.

Skipulags­stofnun bindur leyfis­veitingar eftir­farandi skilyrðum:

1. Áður en framkvæmdir hefjast þarf að rannsaka grunn­ástand á lífríki Brúarár í nágrenni útrásar frárennslis.

2. Útfæra þarf vöktunar­áætlun í samráði við Heilbrigðis­eftirlit Suður­lands.

3. Áður en framkvæmdir vegna seinni áfanga hefjast þarf í samráði við Heilbrigðis­eftirlit að meta hvort þörf er á frekari hreinsun á grund­velli vöktunar á áhrifum reksturs fyrri áfanga á Brúará.

Að teknu tilliti til ofan­greinds telur Skipulags­stofnun ólíklegt að framkvæmdin komi til með að hafa í för með sér veruleg óafturkræf umhverfis­áhrif sem ekki er hægt að fyrir­byggja eða bæta úr með mótvægis­aðgerðum og því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfis­áhrifum.

Samkvæmt 14. gr. laga um mat á umhverfis­áhrifum má kæra ákvörðunina til úrskurðar­nefndar umhverfis- og auðlinda­mála. Kæru­frestur er til 10. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár