Sjötíu herbergja lúxushótel í Lóni þarf ekki í umhverfismat

Stefnt er að opnun heilsu­lindar og hótels í landi Svínhóla á milli Hafnar í Horna­firði og Djúpavogs árið 2022. Hótel­keðjan Six Senses mun sjá um reksturinn. Hótelið yrði í nágrenni Lóns­fjarðar og byggingar­magn er áætlað 20 þúsund fermetrar.

Hugmynd að útliti smáhýsa eða íbúðarhúsa við Svínhóla.
Hugmynd að útliti smá­hýsa eða íbúð­ar­húsa við Svínhóla. Mynd: Úr skýrslu

Skipulags­stofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrir­hugað hótel í landi Svínhóla í Lóni, Sveitar­félaginu Horna­firði, sé ekki líklegt til að hafa í för með sér umtals­verð umhverfis­áhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfis­áhrifum. Hótelið yrði miðja vegu milli Djúpavogs og Hafnar og því töluvert frá annarri ferða­þjónustu á svæðinu.

Skipulags­stofnun barst í september á síðasta ári tilkynning frá Alfaland Hotel ehf. um fyrir­hugaða byggingu hótelsins og bárust frekari gögn þar til í febrúar. Í greinar­gerð kemur fram að eigendur jarðarinnar Svínhóla fyrirhugi uppbyggingu hótels með blöndu af íbúðum og herbergjum.

Um umfangs­mikla framkvæmd er að ræða: 70 herbergi, ýmist í aðal­byggingu eða sérstökum smáhýsum. Gert er ráð fyrir að hótelið geti hýst 203 gesti og að þar starfi 160 manns. Einnig stendur til að byggja 20 einbýlishús, hvert um sig 2-5 herbergi að stærð. Húsin verði seld og að eigendur geti kosið að tengjast hótelinu sem myndi leigja þau út þegar þau væru ekki nýtt af eigendum.

Þá er áformað að á svæðinu verði 1.500 fermetra heilsu­lind sem saman­standi af margskonar aðstöðu, þar á meðal blöndu af gufuböðum, heitum og köldum pottum. Einnig er gert ráð fyrir starfsmanna­aðstöðu. Samanlagt byggingar­magn verður um 20.000 fermetrar. Stefnt er að því að hótelið verði rekið árið um kring og í frétta­tilkynningu sem fyrir­hugaður rekstrar­aðili sendi frá sér í fyrra er stefnt að opnun árið 2022.

Fram kemur í greinar­gerð Alfaland Hotel ehf. að samið hafi verið við Six Senses Hotels Resorts Spas um rekstur hótelsins. Six Senses hafi getið sér gott orð sem hótel­keðja sem leggi ríka áherslu á sjálfbærni í bygginga­framkvæmdum og rekstri. Hús verði lágreist og að rík áhersla verði á að nýta gæði landsins. Allur frágangur á að taka mið af umhverfis­aðstæðum og að mannvirki falli vel að umhverfinu. Til að mynda er stefnt að gróður­klæddum þökum til að draga úr sjónrænum áhrifum.

Í umsögn Náttúru­fræði­stofnunar Íslands um tillöguna kemur fram að framkvæmd sem geri ráð fyrir að hýsa allt að 360 manns muni hafa í för með sér töluverða breytingu á umhverfinu, aukna umferð fólks um svæðið og truflun, m.a. ljós­mengun. Þótt fyrir­hugað sé að halda sjónrænum áhrifum í lágmarki þá muni svæðið taka stakka­skiptum frá því sem nú er. Mikið byggingar­magn þétt við jaðar verndar­svæðis sem auk þess muni breyta hefð­bundnu land­búnaðar­landi í ferða­þjónustu­svæði muni því hafa marg­vísleg áhrif.

Hótelið yrði skammt frá Lónsfirði sem er á náttúru­minjaskrá, meðal annars sem mikil­vægur viðkomu­staður farfugla. Hann telst einnig til mikil­vægra fugla­svæða á Íslandi. Náttúru­fræði­stofnun Íslands hefur lagt til að Lóns­fjörður verði verndaður sérstak­lega þar sem mikið af fuglum fari þar um vor og haust. Allt að þriðjungur íslenska álftar­stofnsins hafi sést þar samtímis.

Framkvæmda­aðili segir í svörum sínum við þessu að allar byggingar verði utan við skilgreint svæði á náttúru­minjaskrá sem og fugla­verndar­svæði í Lóni. Settar verði kvaðir um takmörkun á aðgengi að Lóni á viðkvæmasta tíma ársins með tilliti til fuglalífs.

Í ákvörðun Skipulags­stofnunar segir að fyrir­hugað framkvæmda­svæði sé að mestu tún og framræst votlendi en í næsta nágrenni við Lónsfjörð og Hvalnes sem séu á náttúru­minjaskrá. Það er mat stofnunarinnar að um nokkuð umfangs­mikla framkvæmd sé að ræða og að gera megi ráð fyrir að uppbyggingin auk fyrir­hugaðar starfsemi komi til með að auka álag á nærliggjandi vistkerfi, þ.e. verndar­svæðið Lónsfjörð. „Með hliðsjón af boðuðum mótvægis­aðgerðum telur Skipulags­stofnun þó ólíklegt að fyrir­huguð framkvæmd komi til með að hafa áhrif á verndar­gildi Lóns­fjarðar.“

Að mati Skipulags­stofnunar er enn fremur mögulegt að útfæra skilmála í deili­skipulagi til að tryggja að byggingar falli vel að umhverfi fjarðarins. Segir stofnunin afar mikilvægt að tilhögun verksins verði með þeim hætti sem boðað hafi verið og telur rétt að binda leyfis­veitingar með skilyrðum, m.a. því að haft verði samráð við Minja­vernd vegna fornleifa sem og við Náttúru­fræði­stofnun og Umhverfis­stofnun um stýringu ferða­manna við Lónið. Þá er bent á að við gerð deili­skipulags þurfi meðal annars að huga að lýsingar­hönnun til að draga úr ljós­mengun með tilliti til fuglalífs sem og hönnun göngu­stíga í sama tilgangi.

Að teknu tilliti magra þátta telur Skipulags­stofnun ólíklegt að framkvæmdin komi til með að hafa í för með sér veruleg óafturkræf umhverfis­áhrif sem ekki sé hægt að fyrir­byggja eða bæta úr með mótvægis­aðgerðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár