Ríkisstjórnin ætlar að skipa vinnuhóp um greiningu á arðsemi bankanna

Hreinar þjónustu- og þóknana­tekjur stóru bankanna þriggja voru 37,1 milljarður króna í fyrra. Á ríkis­stjórnar­fundi voru kynnt áform um að skipa vinnuhóp sem á að greina arðsemi þeirra og bera hana saman við sambærilegur tekjur hjá norrænum bönkum.

Á fundi ríkis­stjórnarinnar á föstudag voru kynnt áform um skipun vinnuhóps um greiningu á arðsemi íslensku bankanna. Málið heyrir undir Lilju Alfreðs­dóttur, menningar- og viðskipta­ráðherra, en hún fer með málefni banka- samkeppnis- og neytenda­mála í ríkis­stjórninni.

Samkvæmt heimildum Kjarnans á hópurinn, sem hefur enn ekki verið skipaður, að skoða þjónustu- og þóknana­tekjur íslensku bankanna og bera þær saman við sambærilegar tekjur banka á hinum Norður­löndunum. Búist er við því að starfs­hópurinn verði að störfum í nokkra mánuði.

Þjónustu- og þókanatekjur eru einn stærsti pósturinn í tekjum banka. Þar er um að ræða þókn­­anir fyrir t.d. eigna­­stýr­ingu og fyr­ir­tækja­ráð­­gjöf en líka ýmis gjöld sem bankarnir innheimta af þjónustu sem þeir veita heimilum og fyrir­tækjum landsins.

Þessar tekjur uxu gríð­­ar­­lega á síð­asta ári. Hjá Lands­bank­anum fóru þær úr 7,6 í 9,5 millj­­arða króna og juk­ust því um 25 pró­­sent milli ára. Þar skipti meðal ann­­ars máli að samn­ingum um eigna­­stýr­ingu fjölg­aði um fjórð­ung milli ára. Þjónustu- og þóknana­­tekjur Íslands­banka hækk­­uðu um 22,1 pró­­sent og voru sam­tals 12,9 millj­­arðar króna. Hreinar slíkar ­tekjur Arion juk­ust um 26,7 pró­sent og voru 14,7 millj­arðar króna.

Sam­tals voru því hreinar þjónustu- og þókn­ana­tekjur bank­anna þriggja 37,1 millj­arður króna.

Vill að Samkeppniseftirlitið skoði hegðun bankanna

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, fjallaði um þessi mál í grein sem hann skrifaði í Vísbendingu í mars síðastliðnum.

Þar sagði hann fákeppni ríkja í flestum atvinnu­greinum á Íslandi, vegna smæðar hag­kerf­is­ins og fyr­ir­komu­lags geng­is­mála. Af þeirri fákeppni skap­ast renta sem eykur ráð­stöf­un­ar­tekjur þeirra sem ráða yfir fákeppn­is­fyr­ir­tækj­unum og skekkir smám saman dreif­ingu eigna.

Banka­kerfið er dæmi um slíka fákeppni, en Gylfi segir að þar geti bank­arnir farið sínu fram og aukið eigin arð­semi með ógagn­sæjum verð­skrám og ósam­hverfum upp­lýs­ingum um gjald­skrár og vaxta­mun án þess að við­skipta­vinir þeirra geti rönd við reist.

Í því sam­hengi nefndi Gylfi greiðslu­miðl­un, en sam­kvæmt honum skiptir miklu máli fyrir lífs­kjör Íslend­inga að til sé ódýr inn­lend leið til að miðla greiðsl­um. Til þess að svo megi verða sagði Gylfi að stjórn­völd þurfi þá að koma slíkri greiðslu­miðlun á fót eða ákvarða hvaða verð fjár­mála­fyr­ir­tæki megi rukka fyrir hana. Reyn­ist það ómögu­legt ætti að hafa beint eft­ir­lit með miðl­un­inni líkt og tíðkast í öðrum lönd­um.

Gylfi sagði einnig að mik­ill hagn­aður bank­anna í fyrra veki athygli, sem hefði verið mun minni ef rík­is­stjórnin hefði ekki styrkt fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu og tengdum grein­um. „En þá er varla sjálf­sagt að eig­endur bank­anna haldi veislu í lok far­sóttar með arð­greiðslum vegna góðs gengis á tímum þegar sam­fé­lagið var lamað.“

Á sama tíma og arð­semi bank­anna hafi verið mikil hafi þeir einnig lækkað rekstr­ar­kostnað sinn með því að skera niður í starf­semi úti­bú­anna sinna og með því að fækka starfs­fólki. „En hvar liggur ábat­inn af minni kostn­aði bank­anna? Hefur vaxta­munur verið minnk­aður eða þjón­ustu­gjöld lækuð? [...] Full ástæða er fyrir Sam­keppn­is­eft­ir­lit að rann­saka hegðun bank­anna eins og eft­ir­litið fór ofan í saumana á rekstri olíu­fé­lag­anna fyrir nokkrum árum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár