Vill að Samkeppniseftirlitið skoði hegðun bankanna

Gylfi Zoega segir fulla ástæðu vera fyrir Samkeppnis­eftirlitið til að rannsaka hegðun íslensku bankanna líkt og gert var með olíu­félögin á sínum tíma. Óvíst er hvort hagræðingin í rekstri bankanna hafi skilað sér til neytenda.

Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands.
Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands. Mynd: Skjáskot/RÚV

Samkeppnis­eftirlitið ætti að athuga samkeppnis­umhverfið í íslenska banka­kerfinu, í ljósi mikillar arðsemi þeirra og fákeppnis­umhverfis. Þetta skrifar Gylfi Zoega, hagfræði­prófessor við Háskóla Íslands, í grein sinni í nýjasta tölublaði Vísbendingar, sem kom út í dag.

Fákeppni skekkir eignadreifingu

Samkvæmt Gylfa er fákeppni í flestum atvinnu­greinum á Íslandi, vegna smæðar hagkerfisins og fyrir­komulags gengis­mála. Af þeirri fákeppni skapast renta sem eykur ráðstöfunar­tekjur þeirra sem ráða yfir fákeppnis­fyrir­tækjunum og skekkir smám saman dreifingu eigna.

Banka­kerfið er dæmi um slíka fákeppni, en Gylfi segir að þar geti bankarnir farið sínu fram og aukið eigin arðsemi með ógagnsæjum verðskrám og ósamhverfum upplýsingum um gjaldskrár og vaxtamun án þess að viðskipta­vinir þeirra geti rönd við reist.

Í því samhengi nefnir Gylfi greiðslu­miðlun, en samkvæmt honum skiptir miklu máli fyrir lífskjör Íslendinga að til sé ódýr innlend leið til að miðla greiðslum. Til þess að svo megi verða segir hann að stjórn­völd þurfi þá að koma slíkri greiðslu­miðlun á fót eða ákvarða hvaða verð fjármála­fyrirtæki megi rukka fyrir hana. Reynist það ómögulegt ætti að hafa beint eftirlit með miðluninni líkt og tíðkast í öðrum löndum.

Mikill hagnaður en hvað græða viðskiptavinir?

Gylfi segir einnig að mikill hagnaður bankanna í fyrra veki athygli, sem hefði verið mun minni ef ríkis­stjórnin hefði ekki styrkt fyrirtæki í ferða­þjónustu og tengdum greinum. „En þá er varla sjálfsagt að eigendur bankanna haldi veislu í lok farsóttar með arðgreiðslum vegna góðs gengis á tímum þegar samfélagið var lamað,“ bætir hann við.

Á sama tíma og arðsemi bankanna hefur verið mikil hafa þeir einnig lækkað rekstrar­kostnað sinn með því að skera niður í starfsemi útibúanna sinna. „En hvar liggur ábatinn af minni kostnaði bankanna? Hefur vaxta­munur verið minnkaður eða þjónustu­gjöld lækuð,“ spyr Gylfi og bætir svo við: „Full ástæða er fyrir Samkeppnis­eftirlit að rannsaka hegðun bankanna eins og eftir­litið fór ofan í saumana á rekstri olíu­félaganna fyrir nokkrum árum.“

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár