Trump vill 25 milljarða Bandaríkjadala til að byggja landamæramúr

Donald Trump hefur lagt fram kröfu um að Banda­ríkjaþing samþykki að setja 25 milljarða Bandaríkja­dala, jafnvirði um 2.500 milljarða króna, til að byggja múr á landa­mærum við Mexíkó.

Donald J. Trump.
Donald J. Trump. Mynd: EPA

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti vill að Banda­ríkjaþing stofni 25 millj­arða dala sjóð, jafnvirði 2.500 milljarða króna, vegna bygg­ing­ar múrs á landa­mærum Banda­ríkjanna, meðal annars gagnvart Mexíkó. Í staðinn segist Trump tilbúinn til að láta 1,8 millj­ón­ir ungra inn­flytj­enda fá banda­rísk­an rík­is­borg­ara­rétt á næstu 10 til 12 árum.

Inn­flytj­end­urn­ir sem um ræðir eru svo­kölluð drauma­börn (e. drea­mers), en í fyrstu stóð til að vísa þeim úr landi. Demó­kratar mótmæltu þeim hugmyndum, og hluti Repúblikana sömuleiðis. Þetta leiddi til samninga­viðræðna, sem enn standa yfir, en Trump vonast til þess að leysa úr málinu með þessum „skiptum“.

Trump marglýsti því yfir í kosninga­baráttu sinni, að Mexíkó myndi borga fyrir múrinn, ekki Banda­ríkin.

Óhætt er að segja að Trump standi í miklum stórræðum þessa dagana, og hafa fjöl­miðlar í Banda­ríkjunum sagt að mikill titringur sé nú í starfs­liði forsetans vegna rann­sóknar saksókn­arans Roberts Mueller á tengslum Rússa við framboðs Trumps og kosninga­baráttuna árið 2016.

New York Times greinir frá því í dag, að Trump hafi viljað láta reka Mueller í júní í fyrra, en lögmaður í Hvíta húsinu, Donald McGahn, hafi lagst gegn því og sagt að afleiðingarnar gætu orðið alvarlegar fyrir forseta­embættið og forsetann sjálfan.

Sjálfur hefur Trump sagt, að hann vilji ræða við Mueller sem fyrst, og kallar rannsókn hans mestu norna­veiðar í sögu stjórn­málanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár