Kynnisferðir græddu hálfan milljarð á rekstri strætisvagna

Rekstar­tekjur Almennings­vagna Kynnis­ferða hækkuðu vegna vísitölu­tengingar í samningi við Strætó bs. Móður­félag Icelandia ferða­þjónustu­risans greiðir 300 milljónir í arð til eigenda sinna, Engeyj­a­rætt­ar­innar og lífeyris­sjóða. Flybus nú án samkeppni í rútu­ferðum til og frá Kefla­víkur­flugvelli.

Flybus
Flybus Kynn­is­ferðir reka Flybus rút­urnar, fjölda fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu og sjá um rekstur stræt­is­vagna í Reykja­vík og nágrenni. Mynd: Golli

Kynnis­ferðir, sem reka ýmsa ferða­þjónustu undir merkinu Icelandia, högnuðust um 915,5 milljónir króna í fyrra samkvæmt ársreikningi 2025. Eignir samstæðunnar námu um 20 milljörðum króna og eigið fé tæpum 8 milljörðum.

Dóttur­félög Kynnis­ferða eru fjölmörg og tengjast flest ferða­þjónustu. Þar á meðal eru Ferða­skrifstofa Icelandia sem rekur Flybus rútu­þjónustuna til Kefla­víkur­flugvallar, en Heimildin fjallaði nýverið um að Flybus væri nú án samkeppni eftir að Airport Direct hætti akstri. Engar ákvarðanir hafa verið teknar hjá innviða­ráðuneytinu eða Vega­gerðinni um að efla tíðni eða lengja þjónustu­tíma leiðar 55 hjá Strætó sem fer á milli BSÍ og Leifs­stöðvar, þrátt fyrir tillögur starfs­hóps innviða­ráðherra um aðgerðir.

Annað dóttur­félag, Almennings­vagnar Kynnis­ferða, sinnir rekstri strætis­vagna í Reykjavík og nágrenni í samræmi við samning við Strætó bs. Dóttur­félagið hagnaðist um 565 milljónir króna árið 2025 en aðeins 3,8 milljónir árið áður. „Tekjur félagsins [...] hækka í samræmi við vísitölu, samanber samning félagsins við Strætó …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Einokunin hefur alltaf gefið vel af sér, en það er gott að tala um samkeppni og lýðræði á tyllidögm. Háraliturinn rann jú niður kinnar átrúnaðargoðsins þegar það hélt því fram að "the truth is not always true".
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár