Tollar á innfluttar þvottavélar og sólarskildi valda titringi

Donald J. Trump Bandaríkja­forseti verður seint sakaður um að vera hlynntur frjálsum alþjóða­viðskiptum. Hann hefur samþykkt að hækka tolla um tugi prósenta á valdar vörur til að styrkja innlenda fram­leiðslu.

Ákvörðun Donalds J. Trump Bandaríkja­forseta, um að hækka tolla á innfluttum þvotta­vélum og sólar­skjöldum, hefur nú þegar valdið miklum titringi. Yfirvöld í Suður-Kóreu og Kína hafa þegar lýst því yfir, að aðgerðir muni ekki leiða til góðs, og hafa yfirvöld í Suður-Kóreu sagt að þau geti ekki sætt sig við þetta.

Meðal stórra fyrir­tækja á markaði með þvotta­vélar eru fram­leiðendur eins og LG og Samsung, sem eru iðntækni­risar í Suður-Kóreu. Samkvæmt ákvörðuninni verða tollarnir á þvotta­vélarnar allt upp í 50 prósent næstu þrjú ár og tollurinn á sóla­skildi verður 30 prósent næstu fjögur ár.

Samkvæmt umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC þá hafa yfirvöld í Kína sagt, að þessi aðgerð sé skaðleg fyrir alþjóðlegt viðskipta­umhverfi. Þá óttast þeir sem hafa verið að byggja upp sólar­raforku­kerfi í Banda­ríkjunum, að aðgerin muni seinka framkvæmdum og þannig draga úr myndun starfa.

Stjórnar­formaður þvottavéla­fram­leiðandans Whirlpool, Jeff Fettig, segir í tilkynningu að þessi aðgerð sé fagnaðar­efni og hún muni fjölga störfum í Ohio, Kentucky og Suður-Karólínu.

Robert Lighthizer, viðskipta­ráðherra Banda­ríkjanna, segir tollana nauðsyn­lega til að rétta af óhag­stæðan viðskipta­jöfnuð gagnvart innlendri fram­leiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár