Eyrir Invest og meðfjárfestar selja hlut sinn í Stork á tæpa 100 milljarða króna

Árni Oddur Þórðarson, einn stærsti eigandi Eyris Invest og forstjóri Marel.
Árni Oddur Þórð­ar­son, einn stærsti eig­andi Eyris Invest og for­stjóri Marel.

Eyrir Invest, Arle Capital Partners og meðfjárfestar þeirra hafa gengið frá sölu á hollenska félaginu Stork til bandarísku iðnaðar­samsteypunnar Fluor Corporation, eins stærsta verktaka­fyrirtækis í heimi, fyrir 695 milljónir evra, eða rúmlega 98 milljarða króna. Áætlað er að salan verði að fullu frágengin að fullu á fyrri helmingi næsta árs að höfðu samráði og upplýsinga­gjöf til hagsmuna­samtaka starfs­manna og verkalýðs­félaga í Hollandi og veittum heimildum frá samkeppnis­yfirvöldum.

Stærstu eigendur Eyris Invest, sem átti 17 prósent hlut í Stork fyrir viðskiptin, eru feðgarnir Þórður Magnússon (20 prósent) og Árni Oddur Þorðarson (17 prósent). Auk þeirra á ríkis­bankinn Lands­bankinn 11 prósent hlut og Lífeyris­sjóður Verzlunarmanna tíu prósent. Eyrir á einnig 29 prósent hlut í Marel, en virði þess hlutar hefur hækkað mikið undan­farin misseri. Auk þess á fjár­festinga­félagið Eyri Sprota sem fjárfesta í sprota­fyrirtækjum og styður þau til vaxtar. Eyrir Sprotar er starfrækt í samstarfi við Arion banka.

Eyrir keypti Stock B.V. ásamt meðfjárfestum sínum árið 2007. Þá rak samsteypan m.a. Fokker Technologies, Stork Tecnical Services og Stork Food Systems en kaup Marel hf. á því síðastnefnda voru megin­ástæða fyrir aðkomu Eyris Invest að verk­efninu.

Fyrr á þessu ári var Fokker Technologies selt og með sölunni sem nú hefur samist um lýkur aðkomu Eyris að Stork. Í frétta­tilkynningu frá Eyri vegna viðskiptanna segir: „Heildar­verðmæti viðskiptanna endur­speglar góðan rekstur Stork en jafnframt aðstæður á markaði og nýlega lækkun á margföldurum samanburðar­félaga. Salan mun auka fjárhags­legan sveigjanleika Eyris. Það stefnir í gott ár fyrir Eyri en á árinu hefur félagið lokið tveimur verkefnum og gengi Marel hefur hækkað mikið."

Kaup­andinn, Fluor Corporation er í 136 sæti á lista FORTUNE yfir 500 stærstu félög heims, starfs­menn eru 40.000 í öllum heims­álfum og tekjur félagsins á árinu 2014 námu 21,5 milljörðum bandaríkja­dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár