Steingrímur kallaði Sjálfstæðisflokkinn „fatlaðan“ og var svarað fullum hálsi

Fyrr­verandi formaður Vinstri grænna notaði orðið „fatlaður“ í niðrandi tilgangi til að koma höggi á Sjálfstæðis­flokkinn á kosninga­fundi. Hann baðst afsökunar skömmu síðar.

Steingrímur J. Sigfússon
Stein­grímur J. Sig­fús­son Fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna hefur verið gagn­rýndur harð­lega fyrir ummæli sín. Mynd: Pressphotos

Stein­grímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, oddviti flokksins í Norðaustur­kjördæmi og sá núverandi þingmaður sem setið hefur lengst á Alþingi, kallaði Sjálfstæðis­flokkinn „fatlaðan“ á fram­bjóðenda­fundi Mennta­skólans á Akureyri í dag vegna tregðu flokksins til að afla ríkis­sjóði tekna.

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, vara­formaður Sjálfstæðis­flokksins, svaraði Steingrími fullum hálsi, gagnrýndi orðaval hans og uppskar mikinn fögnuð.

Orðrétt sagði Stein­grímur: „Það yrði þægilegast að við og Samfylkingin myndum ná saman, en síðan horfum við til viðbótar til þeirra flokka sem eru næst okkur í litrófinu, af því að við viljum mynda vinstri­stjórn, félags­hyggju­stjórn, sem nær af stað með sterka uppbyggingar­áætlanir fyrir landið og velferðar­kerfið og ég sé ekki að það verði auðvelt að koma því saman með Sjálfstæðis­flokknum, sem er eins og kunnugt er fatlaður og getur ekki aflað tekna.“

Áslaug Arna svaraði og sagði Steingrím vera að líkja Sjálfstæðis­flokknum við hreyfi­hamlaðan einstakling. „Ég þarf nú fyrst að frábiðja mér það að pólitíkusar tali með þeim hætti að líkja einhverjum sem þeim líkar ekki við við fatlaða einstaklinga. Það er fáránlegt. Við tölum ekki um að flokkar séu fatlaðir,“ sagði hún. 

Þetta er annað dæmið í dag um að reyndir stjórn­málamenn veki athygli vegna ummæla á fram­bjóðenda­fundum í mennta­skólum, en Stundin fjallaði í dag um viðbrögð Bjarna Benedikts­sonar við spurningu um Borgunar­málið á fundi sem haldinn var í Verzlunarskóla Íslands.

Stein­grímur J. baðst afsökunar á ummælum sínum næst þegar hann fékk hljóð­nemann í hendurnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár