Vatnið einkavætt

Vatn er nú söluhærri vara en gosdrykkir í Banda­ríkjunum og stór­fyrirtæki keppast um að eignast vatnsból sem áður töldust til almanna­gæða.

Vatn á flöskum
Vatn á flöskum Neysla á vatni beint úr vatns­bólum er hratt víkj­andi fyrir seldu flösku­vatni. Mynd: Shutterstock

Vatn verður sífellt verð­mætari auðlind eftir því sem áhrif loftslags­breytinga ágerast og mann­skæðir þurrkar verða viðvarandi ástand víða í heiminum. Tæplega 800 milljónir manna hafa í dag ekki aðgang að hreinu drykkjar­vatni og er því spáð að sú tala tvöfaldist á næstu árum. Á sama tíma eru stór­fyrirtæki á borð við Nestlé og Coca-Cola að kaupa upp vatns­lindir fyrir klink og mergsjúga þær til að geta selt vatnið aftur til skatt­borgara með mörg þúsund-faldri álagningu.

Auðlind í flöskuVatn er víð­ast hvar orðin sölu­vara frekar en að vera grund­vall­ar­lífs­gæði.

Eftir iðnbyltinguna í Evrópu og Norður-Ameríku á 19. öld flykktust milljónir frá sveitum til borganna þar sem atvinnu var að fá. Skortur á hreinlæti og vatni leiddi víða til hraðrar útbreiðslu skæðra sjúkdóma í mann­mergðinni og þeir ríkustu kusu oft að kaupa lindar­vatn í gler­flöskum til að forðast að drekka …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár