Hörð viðbrögð ljósmæðra við fréttatilkynningu ráðuneytis

Ljós­mæður birta launa­seðl­ana sína á Facebook til sönn­unar um slæm kjör. „Hvar get ég fengið vinnu sem ljós­móðir sem borgar þessi laun sem koma fram í fréttum?“ spyr ein. Aðstoð­ar­kona for­stjóra Land­spít­al­ans segir ráðu­neytið afvega­leiða umræðu um ljós­mæður eða skorta þekk­ingu.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins kom fram að ljós­mæður hafi fengið sömu hækk­anir og önnur BHM-félög frá 2008. Mynd: Pressphotos

Frétta­til­kynn­ing fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í gær vakti hörð við­brögð ljós­mæðra og ann­arra heil­brigð­is­starfs­manna. Hópur ljós­mæðra hefur birt launa­seðla sína á Facebook. Aðstoð­ar­kona for­stjóra Land­spít­al­ans segir ráðu­neytið annað hvort vilja afvega­leiða umræð­una eða skorta þekk­ingu.

Í frétta­til­kynn­ing­unni voru birtar upp­lýs­ingar um kjör ljós­mæðra og þau sett í sam­an­burð við laun ann­arra félags­manna BHM. Fram kom að með­al­heild­ar­laun ljós­mæðra fyrir fullt starf væru um 848 þús­und krónur á mán­uði. Þá var birt línu­rit til að bera saman fjölda ljós­mæðra og fjölda fæð­inga á 11 ára tíma­bili.

„Varðandi sam­an­burð­inn um hlut­fall ljós­mæðra vs fæð­ingar þá er það annað hvort til­raun til afvega­leið­ingar umræð­unnar (að það bara þurfi ekki svona margar ljós­mæður) eða alvar­legan þekk­ing­ar­skort á hlut­verki ljós­mæðra - nema hvort tveggja sé,“ skrifar Anna Sigrún Bald­urs­dóttir, aðstoð­ar­kona for­stjóra Land­spít­al­ans, í athuga­semd á Facebook.

 „Jafn gagn­legt hefði verið að birta sam­an­burð á sól­ar­dögum í júní á tíma­bil­inu.“

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár