Tollastríð Trumps veldur titringi hjá Repúblikönum

Donald Trump ætlar sér setja háa tolla á innflutning stáls og áls, hvað sem Repúblikanar tauta og raula.

Þrátt fyrir að Gary Cohn, aðal­ráðgjafi Donalds Trumps forseta, hafi sagt af sér, vegna ágrein­ings um tollamál og stefnu í alþjóða­viðskiptum, þá ætlar forsetinn að haldi áformum sínum til streitu.

Tollar á innflutt stál verða 25 prósent og tollar á innflutt ál 10 prósent. Samkvæmt umfjöllun New York Times er andstaðan við þessi áform mun meiri meðal Repúblikana en forsetinn reiknaði með.

Í umfjöllun New York Times er Cohn sagður hafa varað Trump við því að setja upp háa tolla á valdar vörur, með það að markmiði að fjölga störfum í Banda­ríkjunum og efla bandaríska hagkerfið.

Cohn er sagður hafa marg fundað með forsetanum til að reyna að fá hann ofan af því að hækka tolla og grafa undan viðskipta­samböndum við önnur ríki. Hann er sagður hafa sagt Trump að þetta væri hættuspil, sem gæti leitt til þess að bandarískt efnahagslíf skaðaðist og alþjóða­væddur heimur viðskipta sömuleiðis.

Nú þegar hafa komið fram viðvaranir frá bæði Kínverjum og Evrópu­sambandinu, um að ef gengið verði áfram þessa braut í tolla­stríði, þá verði Bandaríkja­mönnum svarað. Tollar á ýmsar vörur sem Bandaríkja­menn flytja til bæði Evrópu og Asíu gætu þannig hækkað, með tilheyrandi skaða fyrir samkeppnis­hæfni fyrir­tækja í Banda­ríkjunum.

Trump er sagður ætla sér að grípa til víðtækra breytinga og hækka tolla á ýmsa fleiri geira, en útfærslur liggja ekki nákvæmlega fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár