Hvers vegna Trump tók Texas

Hvernig má það vera að innflytj­endur við landa­mærin að Mexíkó kusu Donald Trump – manninn sem hefur beitt hörku gegn nýjum innflytj­endum til landsins?

Þó að margir í Texas eigi rætur sínar að rekja til Rómönsku-Ameríku eða Afríku er stundum fátt annað sem sameinar þá.
Þó að margir í Texas eigi rætur sínar að rekja til Rómönsku-Ameríku eða Afríku er stundum fátt annað sem sam­einar þá. Mynd: EPA

Joe Biden, verðandi forseti Banda­ríkjanna, komst nær því en nokkur annar demókrati í langan tíma að hafa betur en helsti mótframbjóðandi sinn í Texas. Biden hafði betur en Donald Trump í mörgum sýslum þéttbýlli staða, fékk m.a. yfir­gnæfandi meirihluta í þeim sýslum þar sem borgirnar Dallas, Austin og Houston er að finna. En það dugði ekki til og á heildina litið fékk Trump um sex prósent fleiri atkvæði í Texas. Það sem tryggði Trump sigurinn var stuðningur fólks með fram Rio Grande-ánni sem myndar að hluta landa­mærin að Mexíkó.

Í sýslunum við Rio Grande er meirihluti íbúanna af rómönsku bergi brotinn. Og sigur Trumps í þessum sýslum, sem hingað til hafa verið vígi demókrata, helgast af því að íbúarnir telja sig hafa verið afskipta árum saman og ekki njóta sömu grunn­innviða og aðrir íbúar Texas. Þó að Trump hafi beitt hörku við að halda öðrum innflytjendum frá landinu voru innflytjendur og afkomendur þeirra á þessum slóðum tilbúnir í breytingar í von um bjartari tíma og fleiri tækifæri.

Mörgum hættir til að setja alla innflytjendur undir sama hatt. Mörgum hættir einnig til að setja alla innflytjendur frá Rómönsku-Ameríku undir sama hatt. En þetta er ekki einsleitur hópur, langt í frá.

Í ítarlegri samantekt Washington Post um niður­stöður forseta­kosninganna í Texas-ríki er t.d. rætt við ungt fólk sem fluttist til Banda­ríkjanna frá nágranna­ríkinu Mexíkó. Annað þeirra, 32 ára karlmaður, hafði misst vinnuna í olíu­iðnaðinum. Eftir að Trump varð forseti fékk hann vinnu í þessum geira á ný. Þetta þakkar hann Trump og gaf honum því atkvæði sitt í kosningunum.

Hitt þeirra er ung kona sem hefur nýlokið háskóla­námi. Hún setti heilbrigðismál og baráttuna gegn kórónu­veirunni efst á blað þegar hún gerði upp hug sinn. Og Biden fékk hennar atkvæði.

Fólk frá Mexíkó og fólk með ættir að rekja þangað eru stærsti hópur innflytjenda frá Rómönsku-Ameríku í Texas. Bæði repúblikanar og demó­kratar hafa reynt að höfða til þeirra í kosningum í gegnum tíðina en gert þau mistök að líta á þau sem eins­leitan hóp fólks. En innan hans á fólk oft ekkert annað sameiginlegt en upprunann. Félagsleg staða þeirra er misjöfn og menntun þeirra sömuleiðis. Sumir eru frekar nýkomnir til Banda­ríkjanna. Aðrir hafa fæðst þar og alist upp.

„Þau eru íhalds­menn, frjáls­lynd, blanda af þessu tvennu eða áhugalaus um stjórnmál,“ útskýrir Trinidad Gonzales, prófessor í mexíkóskum fræðum við háskólann í Suður-Texas. „Hluti af óréttinu sem minnihluta­hópar í Banda­ríkjunum eru beittir er sú staðreynd að fólki sem þeim tilheyra er ekki tekið sem einstaklingum.“

Evrópskir Bandaríkjamenn

Fólk af rómönskum uppruna eru um 30 prósent allra kjósenda í Texas og um 40 prósent allra íbúa ríkisins. Íbúa­samsetningin hefur verið að breytast síðustu ár og sífellt fleiri með ættir að rekja til Rómönsku-Ameríku og Afríku setjast þar að.

„Ef þú vilt fá atkvæði þessa fólks þá þarftu að vinna fyrir því,“ hefur Washington Post eftir Michelle Tremillo, framkvæmda­stjóra samtak­anna Texas Organizing Project sem vinna að því að valdefla verkafólk í ríkinu. Að veifa einhverju einu kosninga­loforði framan í svarta og rómanska íbúa Texas skilar engu.

Að auki er flokkun eftir uppruna og litar­hætti eitthvað sem margir íbúar Texas eru mótfallnir. Með því eru þeir ekki að afneita uppruna sínum heldur einfald­lega að benda á að þeir hafi búið þar kynslóð fram af kynslóð, rétt eins og hvítir Texasbúar sem ættaðir eru frá Evrópu.

Settu atvinnumál á oddinn

Stjórnmála­fræðingur við Háskólann í San Antonio segir það ekkert nýtt að stuðningur við repúblikana sé mikill á dreifbýlli svæðum í Texas. En í þessum kosningum hafi repúblikanar unnið heima­vinnuna sína og sniðið kosninga­baráttu sína um atvinnumál og aðra hagræna þætti.

Julián Castro, fyrr­verandi borgar­stjóri í San Antonio og fyrr­verandi forseta­fram­bjóðandi Demókrata­flokksins, segir það vekja spurningar fyrir flokk sinn að íbúar í mörgum sýslum við landa­mærin að Mexíkó hafi kosið Trump. Hann segir samfélögin þar of mikilvæg fyrir demókrata til að láta eins og ekkert sé. „Það er mjög mikilvægt að við gefum okkur tíma til að skilja hvað gerðist með fram landa­mærunum.“

Aðrir segja að sveiflan í þessum sýslum hafi verið fyrirséð. Biden hafi ekki gefið sig að málefnum íbúanna. Sömu skila­boðin voru sögð vítt og breitt um hið víðfeðma ríki. „Hér er fullt af fólki sem finnst það hafa verið afskipt. Það heldur áfram að kjósa demókrata en ekkert breytist,“ segir Jessica Cisneros, ungur mann­réttinda­lögfræðingur. „Fyrir kórónu­veiru­faraldurinn voru 30 prósent íbúa á þessu svæði undir fátæktar­mörkum og um fjórðungur þeirra hefur ekki sjúkra­tryggingu. Ég skil vel að fólk sé opið fyrir að kjósa repúblikana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár