„Siðferði hins ískalda kapítalisma“

Þingmaður Samfylk­ing­ar­innar segir að viðskipta­siðferði Samherja­manna sé siðferði hins ískalda kapítalisma þar sem ungu fólki sé innrætt að líta á annað fólk sem bráð frekar en samborgara.

Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Það viðskipta­siðferði sem Samherja­málið leiðir í ljós verður ekki til í tómarúmi. Það vex ekki út úr illu innræti einstakra persóna. Þetta er lífs­viðhorf, stefna, ákveðin sýn á annað fólk – og sig.“

Þetta segir Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í stöðu­uppfærslu á Facebook-síðu sinni í dag.

Varla hefur farið fram hjá mörgum hér á landi hið svokallaða Samherjamál. Í umfjöllun Kveiks og Stundarinnar í vikunni kom fram að sjávar­útvegs­fyrirtækið Samherji hefði greitt mútur til að komast yfir kvóta í Namibíu og stundað stór­fellda skatta­sniðgöngu til að hámarka arð sinn af þeim kvóta. Fyrir­tækið er auk þess grunað um peninga­þvætti í Noregi en afleiðingarnar af þessu eru þegar orðnar marg­háttaðar.

Guðmundur Andri segir á Facebook að þetta sé siðferði hins ískalda kapítalisma þar sem ungu fólki sé innrætt að líta á annað fólk sem bráð frekar en samborgara og þar sem manngildi sé mælt í fimi við að víkja sér undan sköttum og öðrum skyldum við samfélag.

„Þetta er sú hugmynd að svona sé leikurinn. Þetta er afsiðun kapítalismans. Réttlætingin felst svo í því að láta gott af sér leiða í nærsamfélaginu, á eigin forsendum og sjálfum sér til dýrðar,“ skrifar þing­maðurinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár