Greiðslustöðvun ríkisins á ársafmæli forsetatíðar Trumps

Trump ætlaði sér að fagna árs dvöl sinni í Hvíta húsinu í dag, en fagnaðar­viðburði með fjárhags­legum bakhjörlum hefur verið frestað.

Demó­kratar og Repúblikanar deila enn um greiðslu­stöðvun bandaríska ríksins, en hún hefur nú varað frá því á miðnætti. Þrátt fyrir að Repúblikanar hafi meirihluta í báðum deildum banda­ríkjaþings, þá tókst ekki að fá nægilegan stuðning við stefnu forsetans. Demó­kratar eru sagðar sérstak­lega ósáttir við að Trump og meirihluti Repúblikana hafi ekki viljað koma til móts við sjónarmið þeirra í innflytjenda­málum, en nái stefna Trump fram að ganga verður um 700 þúsund innflytjendum, sem hafa verið með undanþágu­heimild til dvalar í landinu, vísað úr landi.

Greiðslu­stöðvunin hefur víðtæk áhrif. Greiðslur til alríkis­stofnana hætta að berast, þeim verður lokað og starfs­menn fá ekki greidd laun en lokunin hefur áhrif á mörg hundruð þúsund ríkis­starfsmenn og öll Banda­ríkin.

Hluti grunn­þjónustunnar verður þó enn fyrir hendi, til dæmis bráða­móttökur sjúkra­húsa, póst­þjónustan og rafmagns­veitan.

Þetta gerðist síðast haustið 2013 í forsetatíð Baracks Obama. Þá stóð greiðslu­stöðvun í sextán daga og ríkis­starfs­mönnum var sagt að halda sig heima eða jafnvel vinna launa­laust.

Eitt ár er í dag síðan Donald Trump tók formlega við völdum í Hvíta húsinu, en hann ætlaði sér að fagna þeim tímamótum með fjárhags­legum bakhjörlum sínum í Florída. Hann hefur sleggið því á frest.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár