Pundið komið í 128 krónur

Krónan hefur styrkst töluvert gagnvar helstu viðskipta­myntum að undan­förnu. Pólitískur titringur í Bretlandi hefur hins vegar sett pundið í lægstu lægðir.

Pundið kostar nú 128 krónur en gengi krónunnar hélt áfram að styrkjast í dag, en mest þó gagnvart pundinu, eða um 1,52 prósent. Ástæðan er meðal annars rakin til pólitísks titrings í Bretlandi, en nú styttist í þing­kosningar þar í landi og hafa nýjustu kannanir sýnt að bilið milli Íhalds­flokks Thereseu May forsætis­ráðherra og James Corbyn formanns Verkmanna­flokksins í Bretlandi, er að minnka. Gengið verður til kosningar 8. júní.

Samkvæmt könnun YouGov er Íhalds­flokkurinn með 43 prósent fylgi og Verkamanna­flokkurinn 38 prósent. May freistar þess með kosningunum að fá betra umboð til þess að leiða landið í samninga­viðræðum við Evrópu­sambandið, vegna útgöngu Breta úr sambandinu.

Frá því almenningur í Bretlandi samþykkti í þjóðar­atkvæða­greiðslu í júní í fyrra, að Bretland ætti að fara úr Evrópu­sambandinu, hefur gengi pundsins fallið verulega gagnvart helstu viðskipta­myntum. Breytingin er sérstak­lega mikil gagnvart krónunni, enda hefur gengi hennar verið að fara í þveröfuga átt, það er að styrkjast á móti helstu viðskipta­myntum.

Fyrir einu og hálfu ári kostaði pundið 206 krónur og breytingin því mikil á skömmum tíma. Þetta hefur mikil áhrif á fjölmörg sjávar­útvegs­fyrirtæki á Íslandi, þar sem stærsti einstaki markaður íslenskra sjávar­útvegs­fyritækja með þorsk er í Bretlandi.

Gengi krónunnar hefur styrkst töluvert á þessu ári gagnvart helstu myntum, og er það áframhald á þróun sem var allt síðasta ár. Bandaríkja­dalur kostar nú 100 krónur en var á 140 krónur fyrir rúmlega einu og hálfu ári. Evran kostar 112 krónur en var á 150 krónur fyrir rúmlega einu og hálfu ári.

Mikið gjaldeyris­innstreymi vegna vaxtar í ferða­þjónustu er ein lykilástæða þess að krónan hefur styrkst mikið, en einnig betri efnahags­horfur og hratt batnandi skulda­staða þjóðar­búsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár