Janet Yellen hættir með stolti

Yellen var fyrsta konan til að gegna stöðu seðla­bankastjóra í Banda­ríkjunum. Hún þykir hafa staðið sig afburðavel í starfi.

Janet Yellen
Janet Yellen Mynd: JEWEL SAMAD / AFP/Getty Images

Janet Yellen, seðla­bankastjóri Banda­ríkjanna, hefur tilkynnt um að hún hætti störfum sem seðla­bankastjóri í febrúar, en Jerome H. Powell mun taka við af henni. Donald J. Trump Bandaríkja­forseti hefur þegar tilkynnt um þetta.

Í afsagnar­bréfi sínu, til stjórnar Seðla­banka Banda­ríkjanna, segist hún stolt af því að hafa tekið þátt í árangurs­miklu starfi Seðla­banka Bandaríkjana. Hún segir fjármála­kerfi landsins standa betur nú en fyrir áratug, þegar mikið endur­reisnar­starf hófst í Banda­ríkjunum, eftir fjármála­kreppuna.

„Ég er mjög stolt af því að hafa unnið með mörgum tryggum og hæfum konum og körlum, sérstak­lega forvera mínum í stóli banka­stjóra, Ben S. Bernanke, en forysta hans í fjármála­kreppunni og eftirleik hennar var lykil­þáttur í að reisa við fjármála­kerfi landsins og efnahags­lífið,“ segir Yellen í opinberu afsagnar­bréfi sínu.

Yellen tók við sem formaður stjórnar Seðla­bankans árið 2014. Hún var fyrsta konan í sögunni til að gegna stöðunni, en hún hefur í meira en þrjá áratugi unnið fyrir Seðla­bankann. Hún er með doktors­próf í hagfræði frá Yale og lauk því árið 1971. Hún lauk BS próf frá Brown háskóla 1967.

Yellen er fædd 1946 og 71 árs gömul. Hún er alin upp í Brooklyn í New York.

Hún er ekki síst þekkt fyrir afar mikla hæfileika í hagrannsóknum og hefur rann­sakaða atvinnu­þátttöku kvenna í Banda­ríkjunum meira en flestir aðrir hagfræðingar í Banda­ríkjunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár