Kannar hvort útvista megi eftirlitsverkefnum hins opinbera í ríkari mæli

„Ráðherra telur að útvistun eftirlits­verkefna kunni að vera hagkvæm og hyggst láta kanna hvort útvista megi verkefnum í ríkari mæli,“ segir í svari Þorgerðar Katrínar Gunnars­dóttur, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra, við fyrir­spurn Óla Björns Kárasonar.

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra, telur að það geti verið hagkvæmt að útvista starfsemi eftirlits­stofnana sem undir hana heyra og ætlar að láta kanna hvort slíkt megi gera í ríkari mæli en nú tíðkast. Hún vill þó að gerður sé greinar­munur á eftirliti sem felst í því að ákvarða hvort aðilar uppfylli tiltekin hlutlæg viðmið og hins vegar eftirliti sem byggir á mats­kenndum reglum. Þetta kemur fram í svari ráðherra við fyrir­spurn Óla Björns Kárasonar, þingmanns Sjálfstæðis­flokksins, sem spurði alla ráðherra ríkis­stjórnarinnar á desember­þingi hvort þeir hefðu látið kanna kosti þess og galla að útvista starfsemi eftirlits­stofnana til einka­aðila að hluta eða öllu leyti. 

„Fyrir utan þau verkefni sem fyrr greinir hafa ekki verið kannaðir kostir og gallar þess að útvista starfsemi einstakra eftirlits­stofnana. Þegar um algerlega hlutlægar reglur er að ræða getur verið rétt að kanna að faggiltir aðilar sinni eftirliti. Slíkt hefur t.d. gengið vel varðandi bifreiða­skoðun, vottun lífrænnar matvæla­framleiðslu o.fl.,“ segir í svari sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra við fyrir­spurninni. „Ráðherra telur að útvistun eftirlits­verkefna kunni að vera hagkvæm og hyggst láta kanna hvort útvista megi verkefnum í ríkari mæli, t.d. í sambandi við endur­skoðun á lögum um MAST. Þó ber að gera greinarmun á eftirliti sem felst í því annars vegar að ákvarða hvort aðilar uppfylli tiltekin hlutlæg viðmið og hins vegar eftirliti sem byggir á mats­kenndum reglum, sérstak­lega þegar um er að ræða mats­kenndar hátternis­reglur eins og getur komið upp í t.d. dýra­verndunar­málum. Útvistun á síður við í tilfellum þar sem um huglægt mat er að ræða.“

Útvistun er þýðing á enska orðinu „outsourcing“ og lýsir því þegar stofnun felur utan­aðkomandi aðilum, svo sem einka­fyrirtækjum, að sinna tiltekinni þjónustu fyrir sig eða verkefnum gegn greiðslu. Í útvistunar­stefnu ríkisins, sem samþykkt var í stjórnartíð Sjálfstæðis­flokksins og Framsóknar­flokksins árið 2006, er útvistun lýst sem þjónustu „sem ríkið kaupir af utan­aðkomandi aðilum, þ.e. einstaklingum, fyrir­tækjum, sjálfs­eignar­stofnunum, félaga­samtökum eða sveitar­félögum, hvort sem um er að ræða þjónustu sem keypt er vegna verkefna sem ríkið sinnir sjálft eða þjónustu sem verktaka er falið að veita almenningi og fyrir­tækjum“. Markmið stefnunnar var „gott samstarf við einka­aðila um úrlausn opinberra verkefna þar sem ríkið er ávallt upplýstur kaupandi“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár