Katrín um dómsmálaráðherra sem braut lög: „Hún situr bara áfram í ríkisstjórn“

Vinstri græn styðja Sigríði Andersen áfram sem dómsmála­ráðherra, þótt hún hafi brotið lög þegar hún handvaldi dómara, og segist vera ósammála Hæstarétti. Katrín Jakobs­dóttir segir að lögbrot ráðherra við skipun í Landsrétt „eigi ekki að hafa áhrif á traustið á dómstólnum sem slíkum“.

Formenn við ríkisstjórnarmyndun
Formenn við rík­is­stjórn­ar­myndun Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, mynd­uðu rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokki. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þingmenn Vinstri grænna hafa rætt saman um dóm Hæstaréttar yfir embættis­færslu Sigríðar Andersen dómsmála­ráðherra, sem braut lög við skipan dómara í Landsrétt, og ekki er útlit fyrir að krafist verði afsagnar hennar. Málið hefur þó ekki verið tekið til formlegrar afgreiðslu innan þing­flokksins.

Í viðtali RÚV við Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra og Kolbein Óttarsson Proppé, þingmann Vinstri grænna, í gærkvöldi kom fram að staða Sigríðar Andersen hefði ekki breyst þótt Hæstiréttur hafi komist að þeirri niður­stöðu að máls­meðferð Sigríðar Andersen dómsmála­ráðherra og Alþingis hefði verið ólögleg þegar Sigríður handvaldi fjóra dómara í Landsrétt og vék frá niður­stöðum hæfis­nefndar um hverjir væru 15 hæfustu umsækjendur um dómararstöður.

„Hún er náttúrulega ráðherra“

„Þessi gagnrýni sem birtist þarna í dómnum, hún auðvitað kom fram á þinginu í vor,“ sagði Katrín í samtali við Rúv í kvöld. „Staða hennar hefur ekki breyst að því leytinu til, eins og ég hef sagt, að hún situr bara áfram í ríkis­stjórn.“ 

Þing­maður VGKolbeinn Ótt­ars­son Proppé er full­trúi VG í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd.

Kolbeinni Óttarsson Proppé, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd, sagði að Sigríður yrði áfram ráðherra. „Hún er náttúru­lega ráðherra í þessari ríkis­stjórn áfram. Staðan hefur ekki breyst hvað það varðar.“ 

Hæstiréttur dæmdi íslenska ríkið til að greiða Ástráði Haralds­syni og Jóhannesi Rúnari Jóhanns­syni 700 þúsund krónur í miska­bætur. Kjarninn í niður­stöðu Hæstaréttar er að Sigríður hafi sem ráðherra ekki sinnt rannsóknar­skyldu sinni þegar hún mat hæfi þeirra sem hún valdi sem dómara, fram yfir þá sem sérstök hæfis­nefnd hafði valið. Dómsmála­ráðherra hefur brugðist við og sagt: „Það þarf svo sem ekki að koma neinum á óvart að ég er ósammála efnislega niður­stöðu Hæstaréttar í þessu máli.“ 

Stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd Alþingis mun kalla eftir öllum gögnum málsins og yfirfara það. Formaður nefndarinnar, Helga Vala Helga­dóttir, sagði að þver­pólitísk sátt væri um að skoða málið og að það gæti skaðað traust til nýs dómsstigs, Lands­réttar.

Ríkisstjórnin hafi stuðning þingsins

Birgir Ármannsson, þinga­maður Sjálfstæðis­flokksins, sagðist ekki leggjast gegn því að farið væri í „slíka athugun og slíkar umræður“, þótt hann teldi að dómurinn skýrði sig sjálfur. Hann sagði stöðu Sigríðar Andersen sem ráðherra ekki hafa breyst. „Ekki í þeim skilningi að þetta er ráðherra í ríkis­stjórn sem nýtur stuðnings meirihluta þingsins.“

Katrín sagði að læra þyrfti af dómnum.„Ég tel að við eigum að taka þennan dóm alvarlega og hann stað­festir að sumu leyti þá gagnrýni sem minni­hlutinn skilaði nefndar­áliti um við meðferð Alþingis síðastliðið vor, það er að segja að rannsóknar­skyldan væri ekki uppfyllt með nægjanlega óyggjandi hætti. Það er mín skoðun að við verðum að læra af þessum dómi og það er mikilvægt að Alþingi fari yfir löggjöfina til þess að skýra máls­meðferðar­reglur þannig að öll þessi máls­meðferð verði í fram­tíðinni algerlega hafin yfir allan vafa og að við lendum ekki aftur í svona atvikum.“  

Sigríður AndersenHand­valdi fjóra dóm­ara af fimmtán í Lands­rétt. Hæsti­réttur taldi vinnu­brögðin lög­brot.

Ráðherra ber að skipa þá sem hæfisnefnd velur

Í 12. grein laga um dómstóla er kveðið á um að ráðherra skipi þá sem hæfis­nefnd velur, en ráðherra geti þó gert breytingar ef Alþingi samþykkir það. 

„Óheimilt er að skipa í dómara­embætti mann sem dómnefnd hefur ekki talið hæfastan meðal umsækjenda, hvort heldur einn eða samhliða öðrum. Frá þessu má þó víkja ef Alþingi samþykkir tillögu ráðherra um heimild til að skipa í embættið annan nafn­greindan umsækjanda sem fullnægir að mati dómnefndar öllum skilyrðum til að hljóta skipun í embættið. Ráðherra skal þá leggja slíka tillögu fyrir Alþingi innan tveggja vikna frá því að umsögn dómnefndar er afhent honum,“ segir í lögunum.

Valdi tengda aðila í dóminn

Sigríður valdi meðal annars umsækjenda, Jón Finnbjörnsson, sem metinn var 30. hæfastur, fram yfir aðra. Um var að ræða eiginmann samstarfs­konu hennar til margra ára. 

Síðar var ákvörðun Sigríðar að handvelja fjóra af fimmtán dómurum Lands­réttar rökstudd með því að um jafnréttis­aðgerð væri að ræða, þótt karlmenn hefðu verið valdir, eins og í tilfelli Jóns. 

Þá var Arnfríður Einars­dóttir, eiginkona þing­mannsins Brynjars Níels­sonar, einnig valin fram yfir þá sem metnir voru fimmtán hæfustu, en hún var metin 18. hæfust. Brynjar vék fyrir Sigríði í oddvita­sætinu í kjördæmi þeirra, Reykjavík suður, fyrir síðustu alþingis­kosningar.

Forsætis­ráðherra segir að þetta þurfi ekki að hafa áhrif á traust. „Þetta er auðvitað ekki heppileg byrjun, en ég vænti þess að þetta eigi ekki endilega að hafa áhrif á traustið á dómstólnum sem slíkum,“ sagði Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra í kvöld.

„Gæti svo farið að Lands­réttur yrði að glíma við vantraust og skort á trúverðug­leika um árabil“

Orð Katrínar í kvöld eru þó ekki í samræmi við yfir­lýsingu hennar í júní í sumar, þegar hún sagði að nýtt dómstig þyrfti að glíma við vantraust um árabil. „Í tíð fyrri ráðherra mála­flokksins var mikil áhersla á að leiða fram laga­umgjörð og inntak nýs dómstigs í sátt. Nýr ráðherra hefur nú þver­brotið það ferli, gengið fram á skjön við þann anda sem ríkti á fyrri stigum málsins. Uppnám milli­dómstigsins er nú algjört, á ábyrgð dómsmála­ráðherrans og ríkis­stjórnarinnar allrar. Enn er ekki séð fyrir endann á mála­lyktum þessa og gæti svo farið að Lands­réttur yrði að glíma við vantraust og skort á trúverðug­leika um árabil,“ skrifaði Katrín í grein ásamt Svandísi Svavars­dóttur, nú heilbrigðis­ráðherra, á vef VG. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár