Neyðarfundur í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna framundan

Ákvörðun Donalds Trumps um að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels og færa bandaríska sendi­ráðið þangað hefur vakið hörð viðbrögð.

Ákvörðun Donalds Trumps Bandaríkja­forseta, um að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels, hefur dregið dilk á eftir sér og verður haldinn neyðar­fundur í öryggis­ráði Sameinuðu þjóðanna á morgun þar sem ákvörðunin verður rædd.

Einn þeirra sem hefur harðlega mótmælt ákvörðuninni og sagt hana bæði óábyrga og hættulega, er Salman konungur Sádí-Arabíu. Hann varaði Trump við ákvörðuninni og sagði að hún myndi hleypa illu blóði í múslima um allan heim og skapa ófrið fyrir botni Miðjarðar­hafs.

Washington Post greinir frá því að Trump hafi ákveðið þetta fyrir mörgum mánuðum og unnið að þessu lengi, í mörgum tilvikum þvert á ráðleggingar ráðgjafa.

Palestínu­menn eru æfir vegna ákvörðunarinnar, sem augljós­lega virðist vera frekar til þess fallin að hefta friðar­viðræður frekar en að liðka fyrir þeim, eins og Trump sagði að væri yfirlýst stefna sín með ákvörðuninni. Hann sagði ákvörðunina „rökrétta“ og í takt við kosninga­loforð hans.

Mevlut Cavusoglu, utan­ríkis­ráðherra Tyrklands, sagði að ákvörðun höfuðborg Ísraels væri ábyrgðar­laus og bryti í bága við alþjóðalög og samþykktir Sameinuðu þjóðanna.

Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafði áður varað við því að slík ákvörðun gæti haft alvarlegar afleiðingar, og sagði það eina rétta í stöðunni væri að aftur­kalla ákvörðunina tafar­laust.

Jer­úsalem er helg borg krist­inna, gyð­inga og múslima og hefur nær alla tíð verið bit­bein þess­ara trú­ar­hópa. Vest­ur­bakk­inn umlykur borg­ina, meiri­hluti íbúa eru gyð­ingar en þar búa rúm­lega þrjú hund­ruð þús­und Palest­ínu­menn. Ísra­elar her­námu aust­ur­hluta Jer­úsal­em, þar sem Palest­ínu­menn búa, í sex daga stríð­inu 1967.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár