Gera kröfu um krónutöluhækkanir – en óljóst hve háar kröfur verða gerðar

Starfs­greina­sambandið vill nálgast komandi kjara­samnings­gerð með svipuðum hætti og gerð lífs­kjara­samninganna 2019. Vilhjálmur Birgisson segir kröfu gerða um krónutölu­hækkanir – en hversu há krafan verði ráðist af lengd samnings og stöðu efnahags­mála.

Vilhjálmur Birgisson var nýlega kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins.
Vil­hjálmur Birg­is­son var nýlega kjör­inn for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Starfs­greina­sambandið (SGS) mun gera kröfu um að samið verði um krónutölu­hækkanir á kauptaxta í komandi kjara­samningum, en viðræðu­nefnd SGS afhenti fulltrúum Samtökum atvinnu­lífsins kröfugerð sína, sem byggir á kröfu­gerðum 17 aðildar­félaga SGS, á fundi í morgun.

Vilhjálmur Birgisson formaður SGS segir í samtali við Kjarnann að ekki hafi verið lögð fram nein föst krónutala sem leggjast skuli ofan á lægstu kauptaxta í þeirri kröfugerð sem lögð var fram á fundinum í morgun.

„Í okkar kröfugerð nefndum við ekki neina fasta krónutölu, því það mun ráðast algjör­lega af lengd samningsins, hvort við förum í skammtíma­samning eða langtíma­samning,“ segir Vilhjálmur og nefnir einnig að forsendur og aðstæður launa­fólks séu að breytast dag frá degi. Nægi að nefna vaxta­hækkun Seðla­bankans í dag í því samhengi – og erfitt sé að leggja fram fastsettar kröfur þegar sú er raunin.

Hann segir að fulltrúar SGS og SA hafi verið sammála um það á fundinum í morgun að það hefði tekist nokkuð vel til með núgildandi lífs­kjara­samningum, en með þeim var samið um krónutölu­hækkanir sem nýttust þeim launa­lægstu best. Einnig var sérstakur hagvaxtar­auki settur inn í samninginn og segir Vilhjálmur að hjá SGS satandi viljinn til þess að fara sambærilegar leiðir og gert var í kjara­samnings­gerðinni 2019.

„Það kallar á að allir taki höndum saman,“ segir Vilhjálmur, sem segir þörf á sterkri aðkomu stjórn­valda og sveitar­félaga, auk þess sem reyna þurfi að skapa forsendur fyrir lágu vaxta­stigi í landinu.

Vilhjálmur minnir á að stýri­vextir hafi verið 4,25 prósent í aðdrag­anda þess að lífs­kjara­samningarnir voru undir­ritaðir árið 2019 og þá hafi samtök launa­fólks átt fundi með Seðla­bankanum, til þess að fara yfir hvað verkalýðs­hreyfingin þyrfti að gera til að skapa forsendur fyrir lægri stýri­vöxtum. Vaxta­stigið hafi svo lækkað verulega í veiru­faraldrinum, en Vilhjálmur segir að nú sé „allur þessi ávinningur farinn til baka“ og stýri­vextir standi í 4,75 prósentum, sem séu „mikil vonbrigði“ fyrir launafólk.

Ásgeir sagði Seðlabankann ekki ætla að láta verðbólgu halda áfram

Á upplýsinga­fundi peninga­stefnu­nefndar í morgun, í kjölfar þess að stýri­vextir voru hækkaðir upp í 4,75 prósent, sagði Ásgeir Jónsson seðla­bankastjóri að verðbólga, sem éti upp kaup­hækkanir, hlýti að vera versti óvinur vinnandi fólks. „Við teljum því að við séum að vinna í haginn fyrir næstu kjara­samninga. Og að við getum sýnt fram á það með trúverðugum hætti að við ætlum að ná niður verðbólgu með hörðum aðgerðum til þess að aðilar vinnu­markaðarins sjái það að það þurfi ekki að heimta launa­hækkanir fyrir framtíðar­verðbólgu.“

Þess vegna skipti það máli þegar aðilar vinnu­markaðarins semji um laun á Íslandi að þeir geri sér grein fyrir því að Seðla­bankinn sé ekki að fara að láta verðbólgu halda áfram. „Þegar þeir semja þá þarf ekki að fara fram á hækkanir til þess að halda raun­launum stöðugum. Við teljum að við séum að búa í haginn fyrir næstu kjara­samninga og tryggja það að aðilar vinnu­markaðarins geti sest niður og samið um krónur sem hafi raun­verulegt virði. Ekki krónur sem verði étnar niður af verðbólgu,“ sagði Ásgeir á fundinum í morgun.

Aðkoma stjórnvalda muni skipta miklu máli

Samkvæmt frétta­tilkynningu frá SGS var rætt um fyrir­komulag komandi viðræðna og þau úrlausnar­efni sem liggja fyrir samnings­aðilum á fundinum í morgun. Gert er ráð fyrir að formlegar viðræður byrji um miðjan ágúst.

Í tilkynningu SGS segir að sambandið muni ekki una því að áhrif „vaxandi verðbólgu vegna aðgerða­leysis stjórn­valda í húsnæðis­málum, og erlendra hækkana“ verði sett á herðar félags­manna sambandsins.

„Samtök launa­fólks sömdu um það í síðustu samningum að auka ráðstöfunar­tekjur launa­fólks með heild­stæðum hætti, með krónutölu­hækkunum, vaxta­lækkunum og aðgerðum af hálfu stjórn­valda. Aðstæður þær sem nú eru í samfélaginu og efnahags­umhverfinu kalla á svipaða aðferða­fræði og víðtækt samstarf og samráð til að bregðast við miklum vanda á húsnæðis­markaði, tryggja kaupmátt og öfluga grunn­þjónustu um land allt.

Nú eru uppi þær aðstæður í samfélaginu að aðkoma stjórn­valda að kjara­samningum mun skipta miklu máli við gerð þeirra. Stóraukin verðbólga, miklar verð­hækkanir og mikill vandi á húsnæðis­markaði kalla á að stjórn­völd og SA taki höndum saman við samtök launa­fólks til að tryggja kaupmátt, húsnæði fyrir alla og öfluga grunn­þjónustu um land allt,“ segir í tilkynningu SGS.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár