Vilja byrja á Sundabraut á næsta ári og klára hana fyrir árslok 2027

Þegar innviða­ráðherra og borgar­stjóri undir­rituðu yfir­lýsingu um að stefna að lagningu Sunda­brautar var markmiðið að hefja framkvæmdir 2026 og ljúka þeim 2031. Þing­flokkur Flokks fólksins vill flýta þessu ferli umtals­vert.

Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Eyjólfur Ármanns­son, þing­maður Flokks fólks­ins, er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þingmenn Flokks Fólksins hafa lagt fram þings­ályktunar­tillögu sem felur í sér vilja til að Alþingi álykti að fela Sigurði Inga Jóhanns­syni innviða­ráðherra að beita sér fyrir því að framkvæmdir við Sunda­braut verði hafnar á næsta ári og lokið fyrir árslok 2027 eða fyrr. Þing­flokkurinn vill að brautin verði lögð með brú milli Klepps­víkur og Gufuness.

Í greinar­gerð sem fylgir tillög­unni segir að gerð Sunda­brautar hafi tafist of lengi. Hún hafi fyrst verið sett fram sem hugmynd árið 1975 og komið fyrst inn á aðal­skipulag Reykja­víkur árið 1984, en flokks­pólitískar deilur í Reykjavík hafi orsakað að verk­efninu var sífellt frestað. „Nú þurfa stjórn­völd og stjórn­málamenn að taka ákvörðun um fram­haldið og bera ábyrgð á henni. Búið er að rannsaka alla valkosti og niður­stöðurnar eru skýrar. Sundabrú er hagkvæmasti kosturinn. Því er ekkert til fyrir­stöðu að ákveða endanlega leiðarval og hefja strax undir­búning.“

Mikill samfélagslegur ábati

Í janúar 2022 voru kynntar niður­stöður félags­hagfræðilegrar greiningar um lagningu Sunda­brautar. Niður­stöðurnar sýndu fram á mikinn samfélags­legan ábata af verk­efninu, á milli 185-236 milljarða króna.

Í greinar­gerð þing­flokks Flokks fólksins segir að af valkostunum sem skoðaðir voru hafi innri vextir hæstir þeirri leið sem þau vilja að verði farin, þ.e. með lagningu Sundarbrúar. Alls voru innri vextir þeirrar framkvæmdar metnir 11,5 til 12,2 prósent.

Í yfir­lýsingu Sigurðar Inga og Dags B. Eggerts­sonar, borgar­stjóra í Reykjavík, undir­ritaðri 6. júlí 2021, kemur fram að stefnt sé að því að framkvæmdir við Sunda­braut geti hafist eigi síðar en 2026 og brautin verði tekin í notkun 2031, með eðlilegum fyrir­vörum um niður­stöðu samráðs og umhverfis­mats.

Flokkur fólksins telur að undir­búningur stofn­framkvæmda þurfi ekki að taka svo langan tíma sé vilji fyrir hendi. „Það ætti að vera hægt að hraða mati á umhverfis­áhrifum um helming og hægt er að ljúka við hönnun, rann­sóknir og undir­búning fyrir ársbyrjun 2023 án þess að það komi niður á gæðum þessara verkþátta og útboðs­ferlið getur þá farið fram á árinu 2023 og yrði lokið innan árs.“

Leiðir til þess að fleiri velji bílinn

Í áður­nefndri félags­hag­fræði­legri grein­ingu frá verk­fræði­stof­unum Mann­viti og COWI, kom fram að mestur ábati við lagn­ingu Sunda­brautar felist í færri eknum kíló­metrum, minni útblæstri og mengun og styttri ferða­tíma veg­far­enda vegna styttri leiða til og frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þar var þess þó einnig get­ið, í umfjöllun um áhrif á umferð einka­bíls­ins, að minni umferð­ar­tafir og styttri ferða­tími þýði að „fleiri muni velja bíl­inn sem sinn samgöngu­máta, og fleiri bílar muni koma á göt­urn­ar“ sem dragi að ein­hverju leyti úr stytt­ingu ferða­tíma og fækkun ekinna kíló­metra, sem þó er umtals­verð eða á bil­inu 128-140 þús­und kíló­metrar dag­lega.

Þannig var gengið út frá því í skýrsl­unni að Sunda­braut muni fjölga bíl­ferð­um, miðað við að engin Sunda­braut verði byggð, á kostnað bæði ferða með almenn­ings­sam­göngum og ferðum á hjóli. Talið að að dag­legum bíl­ferðum muni fjölga um 2.550-5.000 með til­komu Sunda­brautar – mest ef jarð­göng verði fyrir val­inu.

Nið­ur­staða grein­ing­ar­innar frá Mann­viti og COWI var þó sú að Sunda­braut, hvort heldur sem er í jarð­göngum eða um brú, hafi mik­inn sam­fé­lags­legan ávinn­ing og sé metin sam­fé­lags­lega hag­kvæm fram­kvæmd sem slík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár