„Þurfum ekki að skrifa fleiri skýrslur“: Sundabrú trompar Sundagöng

Brú yfir Kleppsvík þykir fýsilegri kostur en jarðgöng úr Laugarnesi yfir í Gufunes, samkvæmt nýrri skýrslu starfs­hóps. Áætlaður heildar­kostnaður við lagningu Sunda­brautar er tæpir 70 milljarðar króna.

Valkostirnir tveir sem starfshópurinn rýndi í og mat upp á nýtt voru löng og dýr jarðgöng eða lágbrú sem mun fyrirsjáanlega hafa einhver áhrif á starfsemi Sundahafnar.
Val­kost­irnir tveir sem starfs­hóp­ur­inn rýndi í og mat upp á nýtt voru löng og dýr jarð­göng eða lág­brú sem mun fyr­ir­sjá­an­lega hafa ein­hver áhrif á starf­semi Sunda­hafnar. Mynd: stjórnarráðið

„Við þurfum ekki að skrifa fleiri skýrslur,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra á blaðamanna­fundi í dag, þar sem hann kynnti niður­stöðu starfs­hóps um legu Sunda­brautar. Fram kom í máli ráðherra að brú væri talin afgerandi betri kostur en jarðgöng til þess að tengja Sæbraut við Gufunes.

Heildar­kostnaður við Sunda­braut er metinn tæpir 70 milljarðar króna og áætlað er að verkefnið verði unnið í samvinnu ríkis- og einka­aðila. Þegar af því verður, en talið er raunhæft að framkvæmdir gætu hafist árið 2025 og þeim lokið undir lok áratugarins.

Á fundinum kom fram í máli ráðherra að Sundabrú hefði verið talinn verið hagkvæmari kostur en jarðgöng, í skýrslu starfs­hópsins, sem nálgast má hér.

Starfs­hópurinn taldi vega þyngst að kostnaður við brúarleið væri lægri, brú hentaði betur fyrir alla ferðamáta og almennings­samgöngur og að brú bætti samgöngur innan höfuð­borgar­svæðisins og til og frá borginni með því að dreifa umferð, minnka álag á öðrum stofn­vegum og stytta ferðatíma.

„Niður­stöður um að Sundabrú sé hagkvæmari kostur eru afgerandi og að mínu mati er ekkert því til fyrir­stöðu að taka næstu skref og hefja framkvæmdir við Sunda­braut. Þetta er ekki spurning hvort af verk­efninu verði heldur hvenær. Núna er góður tími að fara í opinberar framkvæmdir. Undir­búningur verksins, hönnun og verklegar framkvæmdir skapa mikilvæga atvinnu og auka hagvöxt í landinu,“ sagði Sigurður Ingi í kynningu sinni á fundinum.

Fram kemur í tilkynningu á vef stjórnar­ráðsins að starfs­hópurinn telji að framkvæmdir við Sunda­braut geti hafist árið 2025 og lokið 2029-2030.

„Hópurinn telur að undir­búningur, rann­sóknir, hönnun, mat á umhverfis­áhrifum og vinna við breytingar á skipulags­áætlunum taki að lágmarki 4 ár. Þá megi áætla að framkvæmda­tími við byggingu Sunda­brúar og aðliggjandi vega verði um 4-5 ár,“ segir á vef stjórnar­ráðsins.

Vinna starfshóps dróst á langinn

Sigurður Ingi skipaði starfs­hópinn síðasta vor og hann hefur verið að störfum síðan. Fyrst átti niður­staðan að liggja fyrir í ágúst, en dregist hefur að ljúka vinnunni, þar til núna nýlega og segist ráðherra hafa fengið skýrsluna í hendur um liðna helgi.

Hópnum var falið að meta hvort fýsilegra væri að Sunda­braut yrði skipulögð sem jarðgöng frá Laugarnesi yfir í Gufunes eða þá að hún færi lágbrú sem þvera myndi hafnar­svæði Sunda­hafnar við Kleppsvík.

Vega­gerðin leiddi hópinn, en í honum voru líka fulltrúar frá Reykja­víkurborg, Samtökum sveitar­félaga á höfuð­borgar­svæðinu og Faxa­flóahöfnum. Þeir tveir mögu­leikar sem hópurinn var að velja á milli voru þeir tveir sem fýsilegastir þóttu í mati annars starfs­hóps, sem skilaði af sér skýrslu árið 2019.

Legið hefur fyrir að taka þyrfti ákvörðun um hvernig tengjast ætti á milli Sæbrautar og Gufuness áður en hægt yrði að taka ákvörðun um hvernig Sunda­braut myndi liggja alla leið að Vestur­landsvegi í Kolla­firði.

Fleiri líklegir til að keyra um brú

Fyrir hefur legið að ákveðnir gallar eru við báðar leiðirnar sem starfs­hópurinn var beðinn um að leggja mat sitt á. Brú, eins og nú er stefnt að, mun að einhverju leyti skerða hafnar­svæðið við Sundahöfn þrátt fyrir að hún verði ekki lág og jarðgöng yrðu mjög dýr og fyrir­sjáanlega ekki jafn mikið nýtt og brú.

Fólk sem er statt í Skeifunni á bílnum sínum mun enda ólíklega keyra niður í Laugarnes til þess að fara yfir í Grafarvog eða áleiðis upp í Mosfellsbæ í jarð­göngum, í stað þess að velja Ártúns­brekkuna. Þó að það væri kannski smá traffík. Þetta höfðu umferðar­greiningar sýnt fram á – að jarðgöng myndu laða að sér minni umferð en brú.

Sigurður Ingi var búinn að koma því á framfæri að hann væri hrifnari af brú og gladdist hann yfir því að sú sannfæring hans hefði komið út úr vinnu starfs­hópsins.

Kostirnir endurmetnir frá grunni

Það sem starfs­hópnum var nákvæmlega falið að gera var að í fyrsta lagi að endurmeta hönnun og legu og gera nýtt kostnaðarmat fyrir bæði jarð­göngin og brúna. Leggja átti fram ný frumdrög fyrir báðar framkvæmdirnar og taka mið af uppbyggingar­áformum sem finna mátti í samgöngu­sáttmála höfuð­borgar­svæðisins.

Í annan stað átti starfs­hópurinn að greina þá valkosti sem yrðu fyrir hendi varðandi breytt skipulag Sunda­hafnar, ef lágbrú yrði fyrir valinu. Fram kom í skipunar­bréfi að í þeirri vinnu fælist að leggja mat á áhrif á umferð, umhverfis­þætti, nærumhverfi, atvinnu­starfsemi og þróunar­möguleika Sunda­hafnar.

Einnig var hópnum falið að skoða hvort hægt væri að koma fram með nýja hönnun á brú sem sátt næðist um og það er það sem var ofan á.

Sundabraut er ekki hluti samgöngusáttmálans

Oft er rætt um Sunda­brautina í samhengi við samgöngu­sáttmála höfuð­borgar­svæðisins og stundum virðist sá misskilningur vera uppi í umræðu um málið að framkvæmd Sunda­brautarinnar sjálfrar sé hluti af framkvæmda­áætlun sátt­málans, sem gerður var á milli sveitar­félaganna á höfuð­borgar­svæðinu og ríkisins.

Svo er hins vegar ekki, heldur er Sunda­braut eitt þeirra samgöngu­verkefna sem opnað hefur verið á að fari í einka­framkvæmd. Í samgöngu­sáttmálanum er þó kveðið á um að við endanlega útfærslu framkvæmda verði „sérstak­lega hugað að greiðri tengingu aðliggjandi stofn­brauta svo sem Sunda­brautar inn á stofn­brautir höfuð­borgar­svæðisins.“

Hvað þetta þýðir nákvæmlega er ansi loðið og hefur verið túlkað með mismun­andi hætti af stjórn­málamönnum sem hafa ólíka sýn á framtíð samgangna á höfuð­borgar­svæðinu.

En nú þarf ekki að skrifa fleiri skýrslur, samkvæmt Sigurði Inga, Sundabrú yfir Kleppsvík er það sem stefnt verður að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sundabraut

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár