Sundabraut samfélagslega hagkvæm, fækkar eknum kílómetrum en fjölgar bílferðum

Ábatinn af lagningu Sunda­brautar fyrir samfélagið gæti numið allt að 236 milljörðum króna, samkvæmt greiningu Mannvits og COWI. Eknum kíló­metrum gæti fækkað um rúmlega 140 þúsund á dag, en daglegum bílferðum gæti að sama skapi fjölgað um þúsundir.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tóku við félagshagfræðilegri greiningu um Sundabraut í gær.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra tóku við félags­hag­fræði­legri grein­ingu um Sunda­braut í gær. Mynd: Af vef stjórnarráðsins

Ábati íslensks samfélags af lagningu Sunda­brautar gæti orðið á bilinu 186-236 milljarðar króna, samkvæmt félags­hagfræðilegri greiningu frá verkfræði­stofunum Mannviti og COWI, sem Sigurður Ingi Jóhannsson innviða­ráðherra og Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri veittu formlega viðtöku í gær.

Í krónum talið yrði ábatinn á því 30 ára tímabili sem greiningin tekur til mestur ef ákveðið verður að Sunda­brautin liggi í jarð­göngum undir Kleppsvík, samkvæmt því sem segir í skýrslunni, eða 236 milljarðar króna.

Jarð­göngin á milli Gufuness og Laugarness eru þó dýrari valkostur en brú yfir Klepps­víkina og er svokallað nytja-kostnaðar­hlutfall brúar­valkosta hærra og innri vextir þeirra framkvæmda sömuleiðis, sem þýðir að meira fæst til baka í samfélags­legan ábata fyrir hverja krónu sem lögð er út vegna brúar­gerðar.

Ástæðan fyrir því að ábati af jarð­göngum er metinn meiri í krónum talið en brúar­valkostirnir, sem sagðir eru skila 185 og 208 milljarða króna samfélags­legum ábata, er sú að færri vegamót eru í Sunda­göngum og stærri hluti leiðarinnar í frjálsu flæði – og því minni tafir fyrir ökumenn.

Eknum kílómetrum fækki verulega en bílferðum fjölgi líka

Í skýrslunni kemur fram að mestur ábati við lagningu Sunda­brautar felist í færri eknum kíló­metrum, minni útblæstri og mengun og styttri ferðatíma vegfarenda vegna styttri leiða til og frá höfuð­borgar­svæðinu.

Þar er þess þó einnig getið, í umfjöllun um áhrif á umferð einka­bílsins, að minni umferðar­tafir og styttri ferðatími þýði að „fleiri muni velja bílinn sem sinn samgöngu­máta, og fleiri bílar muni koma á göturnar“ sem dragi að einhverju leyti úr styttingu ferðatíma og fækkun ekinna kílómetra, sem þó er umtals­verð eða á bilinu 128-140 þúsund kíló­metrar daglega.

Þannig er gengið út frá því í skýrslunni að Sunda­braut muni fjölga bílferðum, miðað við að engin Sunda­braut verði byggð, á kostnað bæði ferða með almennings­samgöngum og ferðum á hjóli. Talið að að daglegum bílferðum muni fjölga um 2.550-5.000 með tilkomu Sunda­brautar – mest ef jarðgöng verði fyrir valinu.

Niður­staða greiningarinnar frá Mannviti og COWI er þó sú að Sunda­braut, hvort heldur sem er í jarð­göngum eða um brú, hafi mikinn samfélags­legan ávinning og sé metin samfélags­lega hagkvæm framkvæmd sem slík.

Í tilkynningu innviða­ráðuneytisins vegna málsins segir frá því að vinnu starfs­hóps um Sunda­braut, sem hóf störf í júní árið 2020, sé nú formlega lokið, en hópurinn skilaði skila­grein til ráðherra og borgar­stjóra samhliða afhendingu félags­hagfræði­legu greiningarinnar.

Næstu skref eru sögð þau að Vega­gerðin vinni að undir­búningi á mati á umhverfis­áhrifum og rann­sóknum í samstarfi við Reykja­víkurborg og Faxa­flóahafnir og Reykja­víkurborg vinni að undir­búningi nauðsynlegra skipulags­breytinga.

„Gert er ráð fyrir að mat á umhverfis­áhrifum og nauðsynlegar skipulags­breytingar taki 2 til 3 ár, frekari rann­sóknir og hönnun 2 ár og útboðs­ferli stórrar framkvæmdar um 1-2 ár. Þessa verkhluta má vinna að einhverju leyti samhliða og miðar allur undir­búningur við að framkvæmdir við Sunda­braut geti hafist árið 2026 og að Sunda­braut frá Sæbraut að Kjalarnesi verði lokið árið 2031,“ segir í tilkynningu innviða­ráðuneytisins og Vega­gerðarinnar.

Sigurður Ingi segir að grafan mæti árið 2026

Í tilkynningu frá innviða­ráðuneytinu er haft eftir Sigurði Inga að niður­stöðurnar staðfesti þá sannfæringu hans „að Sunda­braut muni hafa gríðar­lega þýðingu fyrir samgöngur og mun umbylta umferðinni á höfuð­borgar­svæðinu.“

„Sunda­braut mun dreifa álagi, leysa umferðar­hnúta og styrkja öryggis­leiðir. Sunda­brautin mun auk þess stytta vega­lendir fyrir alla þá sem ferðast innan og til og frá höfuð­borgar­svæðinu – óháð ferðamáta. Með þessa greiningu í farte­skinu getum við nú brett upp ermar og hafist handa við að undirbúa framkvæmdir sem hafist geti innan fárra ára,“ er haft eftir ráðherra, sem bætir um betur í færslu á Facebook-síðu sinni boðar þar að framkvæmdum við Sunda­braut muni ljúka árið 2031.

„Tíminn næstu fjögur árin verður nýttur vel með samtölum við íbúa og aðila í nærumhverfi, breytingum á skipulagi og gerð umhverfis­mats og hönnun fer af stað á næstunni. Útboðs­ferlið tekur þrjú til fjögur ár og í framhaldi mætir grafan á staðinn árið 2026 og framkvæmdum lýkur með þverun Kolla­fjarðar árið 2031,“ skrifar Sigurður Ingi á Facebook.

Samráð við íbúa og hagsmunaaðila lykilatriði við leiðarvalið

Haft er eftir Degi B. Eggerts­syni borgar­stjóra í sömu tilkynningu að með sameiginlegri yfir­lýsingu borgar og ríkisins síðasta sumar, þess efnis að Sunda­braut verði lögð í einnig framkvæmd og tekin í notkun 2031, hafi Sunda­brautar­málið komist í traustan og góðan farveg.

„Félags­hagfræðileg greiningin sem nú liggur fyrir er mikil­vægur áfangi en segja má að samkvæmt henni sé minni munur en á þeim kostum sem hafa verið til skoðunar, Sunda­braut á brú og Sunda­braut í göngum,“ er haft eftir Degi í tilkynningunni, en í því samhengi má rifja upp að samráð við íbúa í Laugardal og Grafar­vogi fyrr á öldinni varð til þess að borgin gerði þá stefnu að sinni að Sunda­braut skyldi leggja í jarð­göngum.

„Í samræmi við samkomu­lagið eru næstu skref þau að vinna ítarlegt umhverfismat þar sem þessir báðir þessir kostir verða bornir saman við núll-kost. Umhverfis­matið og samráð við íbúa og hagsmuna­aðila beggja vegna Klepps­víkur verður lykil­atriði við endanlegt leiðarval. Við útfærslu beggja leiða verða allir umhverfis­þættir og mótvægis­aðgerðir vegna hugsanlegra neikvæðra áhrifa af umferð fyrir nærliggjandi hverfi sérstak­lega skoðað. Þá liggur einnig fyrir að hagmunir almennings­samgangna, gangandi og hjólandi verða teknir inn í myndina ásamt hafnar­starfsemi,“ er einnig haft eftir Degi í tilkynningunni frá innviða­ráðuneytinu.

Hagfræðistofnun HÍ telur tímavirði of hátt metið

Í skila­grein starfs­hópsins um Sunda­brautina segir að Hagfræði­stofnun Háskóla Íslands hafi verið fengin til þess að rýna helstu forsendur greiningarinnar og niður­stöður Mannvits og COWI.

Fram kemur að Hagfræði­stofnun telji mikilvægt að betri forsendur liggi fyrir varaðndi nokkra grunn­þætti sem liggi til grund­vallar greiningum sem þessari, t.d. mat á tímavirði íbúa á höfuð­borgar­svæðinu, forsendur fyrir ferða­mátavali í samgöngu­líkani, tölfræðilegt mat á verðmæti mannslífa í tengslum við mat á ábata vegna umferðar­slysa og mat á verðmæti umhverfis.

Þá segir frá því að Hagfræði­stofnun hafi leitt líkum að því að samfélags­ábatinn í greiningu Mannvits og COWI væri ofmetinn, þar sem tímavirði notenda væri metið of hátt, en ekki liggi fyrir ítarlegar rann­sóknir á tímavirði hérlendis.

Á móti telji Hagfræði­stofnun þó að töluvert hátt álag sé á áætlaðan stofn­kostnað við framkvæmdina, sem greiningin taki mið af, og að mikilvægt sé að horfa til kostnaðar sambærilegra verkefna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár