Óleyfilegt að auglýsa að mjólkurvörur bæti tannheilsu barna

Það má ekki segja hvað sem er í markaðs­setningu matvæla. Strangar reglur gilda um heilsu­full­yrðingar og þær eru, miðað við skýrslu MAST og fleiri, þver­brotnar.

Óleyfilegar full­yrðingar í markaðs­setningu matvæla, sérstak­lega fæðu­bótarefna, eru algengar. Þetta er niður­staða eftirlits­verkefnis um næringar- og heilsu­full­yrðingar sem Matvæla­stofnun og heilbrigðis­eftirlit sveitar­félaganna stóð að og birtar voru í dag. Um slíkar full­yrðingar gildir sérstök löggjöf, reglugerð Evrópu­sambandsins um næringar- og heilsu­full­yrðingar er varða matvæli sem tók gildi árið 2007 og var innleidd í íslenska löggjöf árið 2010. Einungis er leyfilegt að nota þær full­yrðingar sem uppfylla skilyrði í reglugerð u heilsu­full­yrðingar og eru á listum ESB yfir leyfilegar full­yrðingar og með þeim skilyrðum sem þar koma fram.

Stofnanirnar segja að óleyfilegar full­yrðingar komi fram í merkingum á vörunum en einnig í ýmsu markaðs­efni sem notað er við markaðs­setningu. Niður­staðan sé sú „að verulega skorti á að allar full­yrðingar sem notaðar voru við markaðs­setningu matvæla væru í samræmi við gildandi reglur. „Staða þessara mála hefur ekki batnað síðan síðasta eftirlits­verkefni um næringar- og heilsu­full­yrðingar var framkvæmt árið 2017.“

Í verk­efninu var reynt að skoða sérstak­lega vörur sem bera full­yrðingar um að þau styrki ónæmis­kerfi líkamans og full­yrðingar um efni sem koma í veg fyrir eða draga úr líkum á sjúkdómum, svokallaðar sjúkdóms­full­yrðingar. Yfirleitt er hér um að ræða fæðu­bótarefni sem geta inni­haldið margs konar virk efni. Þau algengustu eru A-, C-, D-, E-, B6- og B12-vítamín og steinefni s.s. járn, kopar og selen og einnig astaxantín, ýmsar fitusýrur og meltingar­örverur (probiotics) auk ýmissa annarra efna sem ekki falla í þessa flokka.

Framkvæmd eftirlits var ýmist hefð­bundið eftirlit sem fór fram á smásölu­stað, s.s. í stór­verslunum, apótekum og sérvöru­verslunum með fæðu­bótarefni. Einnig var framkvæmt rafrænt eftirlit með heima­síðum dreifingar- og söluaðila, á samfélags­miðlum og loks auglýsingum í fylgi­blöðum dagblaða.

Vörurnar sem voru skoðaðar voru upprunnar frá Íslandi, Evrópu­sambandinu, Bretlandi og Banda­ríkjunum. Flestar óleyfilegar full­yrðingar fylgdu vörum frá Banda­ríkjunum en þar gildir önnur löggjöf um full­yrðingar við markaðs­setningu matvæla heldur en í Evrópu.

Í Evrópu gilda hins vegar aðrar reglur og þar er einfald­lega óheimilt að markaðs­setja matvæli með heilsu­full­yrðingum án þess að þær hafi verið sérstak­lega leyfðar.

Full­yrðingarnar sem fylgdu vörunum sem skoðaðar voru í tengslum við eftirlits­verkefnið voru að miklu leyti að finna í íslensku markaðs­efni, s.s. í auglýsinga­bæklingum, en ekki á merkingum varanna.

Full­yrðingar voru einnig áberandi í reynslu­sögum sem notaðar eru við markaðs­setningu. „Reynslu­sögur eru kostaðar auglýsingar þar sem vara er auglýst með því að einstaklingur lýsir góðri reynslu sinni af vörunni og oft er vafið inn í textann einhverskonar fróðleik og full­yrðingum um virkni ákveðinna efna,“ segir í skýrslu stofnanna um niður­stöðu verk­efnisins. Bent er á að sömu reglur gilda um reynslu­sögur og aðrar tegundir markaðs­setningar.

Vara sögð draga úr hættu á ákveðnum sjúkdómum

Þrír flokkar óleyfilegra full­yrðinga voru sérstak­lega áberandi en það voru full­yrðingar sem vísa í hlutverk næringar­efnis eða annars efnis í vexti, þroskun og starfsemi líkamans, full­yrðingar um að varan dragi úr sjúkdóms­áhættu sem og ósértækar full­yrðingar, segir í skýrslunni. „Strangar reglur gilda um notkun full­yrðinga en því miður virðist sem matvæla­fyrirtæki séu ekki meðvituð um þær reglur eða einfald­lega kjósi að fylgja þeim ekki.“

Stjórn­endur matvæla­fyrirtækja bera ábyrgð á að allar full­yrðingar sem notaðar er við markaðs­setningu matvælanna, hvort sem um er að ræða full­yrðingar á matvælunum sjálfum eða í markaðs­efni þeirra, uppfylli ákvæði laga og reglu­gerða sem þetta varðar.

Dæmi um óleyfilegar heilsu­full­yrðingar sem stofnanirnar gera athugsemdir við:

„Mjólkurvörur bæta tannheilsu barna“

- Heilsu­fullyrðing sem vísar til þroskunar og heil­brigðis barna (1. mgr. 14. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„D-vítamín er hollt og gott fyrir líkamann.“

- Ósértæk heilsu­fullyrðing (3. mgr. 10. gr. Reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„Þeir sem borða ekki þetta fæðubótarefni mega búast við lakari líkamlegri heilsu“

- Heilsu­fullyrðing sem gefur til kynna að það geti haft áhrif á heil­brigði ef matvælanna er ekki neytt (a-liður 12. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„Þeir sem borða 2 töflur af XX á dag mega búast við að léttast um 5 kg á viku.“

- Heilsu­fullyrðing sem vísar til þess hversu hratt eða mikið þyngdartap kunni að verða (b-liður 12. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„NN bæklunarlæknir á Landspítalanum mælir sérstaklega með XX fyrir liðina“

- Heilsu­fullyrðing sem vísar til meðmæla einstakra lækna eða fagfólks í heilbrigðis­þjónustu (c-liður 12. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„A-vítamín bætir starfsemi lungna og eykur súrefnisflæði í líkamanum.“

- Heilsu­fullyrðing sem vísar í hlutverk næringar­efnis eða annars efnis í vexti, þroskun og starfsemi líkamans (a-liður 1. mgr. 13. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„LA sýra stuðlar að andlegum og vitsmunalegum þroska“

- Heilsu­fullyrðing sem vísar í sálræna og atferlislega starfsemi (b-liður 1. mgr. 13. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„Hjálpar til við að draga úr sykurfíkn“

- Heilsu­fullyrðing sem vísar í megrun, þyngdar­stjórnun eða minni svengdar­tilfinningu eða aukna tilfinningu fyrir saðningu eða skert orku­innihald fæðunnar (c-liður 1. mgr. 13. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

„XX dregur úr niðurbroti brjósks í stoðkerfi líkamans“

- Heilsu­fullyrðing sem fullyrðir að dregið sé úr sjúkdóms­áhættu (1. mgr. 14. gr. reglu­gerðar ESB nr. 1924/2006).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár