Trump setur sinn mann yfir eftirliti með Wall Street

Bandaríkja­forseti er nú sagður vera að setja fulltrúa Wall Street yfir reglu­verki fjármála­markaðarins innan Seðla­banka Banda­ríkjanna.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, er sagður líklegur til að skipa Randel Quarles sem nýjan yfirmann eftirlits með stórum bönkum á Wall Street, að því er Wall Street Journal greinir frá í dag. Quarles hefur verið meðal innsta kjarna í baklandi Trumps, og hefur starfað sem fjár­festinga­stjóri hjá sjóðum á Wall Street. Í seinni tíð hefur ferill hans að mestu snúist um rekstur The Cynosure Group, sjóðs sem hann stofnaði sjálfur.

Trump segist ætla að „afreglu­væða“ fjármála­kerfið, það er minnka eftirlits­hlutverk hins opinbera, „stórkost­lega“ (massive). Seðla­banki Banda­ríkjanna, undir stjórn Janet Yellen, hefur talað gegn því að slakað verði á eftirliti, og hefur bent á að fjármála­kerfið sé sterkara nú en áður og efnahagslíf Banda­ríkjanna hafi notið góðs af betra eftirliti. Gæði lána séu meiri en þau voru, og bankarnir hafi staðist nákvæm próf Seðla­bankans.

Trump og helsta bakland hans er á allt annarri skoðun og lofaði Trump því í kosninga­baráttunni, að það yrði eitt hans fyrsta verk, að ná skera niður eftirlit með bönkum á Wall Street, en ekki eru nema níu ár síðan Seðla­banki Banda­ríkjanna og ríkis­sjóður björguðu stærstu bönkum landsins - nær öllum að tölu - með tæplega eitt þúsund milljarða Bandaríkja­dala björgunar­lánum, til að koma í veg fyrir að neyðar­ástand skapaðist á fjármála­markaði og í heiminum öllum.

Í bók Ben Bernanke, fyrr­verandi Seðla­bankastjóra Banda­ríkjanna, A Courage To Act, segir hann að það hafi munað einum sólar­hring að sambærilegt ástand hefði skapast í Banda­ríkjunum, og varð raunin í Kreppunni miklu á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar. Þá rauk atvinnu­leysi upp í 30 prósent og neyðar­ástand skapaðist með fjölda­gjaldþrotum um allt land, og raunar heiminn sömuleiðis.

Ekki hefur verið lögð fram ítarleg áætlun um hvernig afreglu­væðingin mun birtast, en fastlega er gert ráð fyrir að sú áætlun muni koma fram síðar á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár