Sjö vikna gamalt stúlkubarn í einangrun vegna kíghósta

Rúma viku tók að greina stúlkuna en móðirin var ítrekað send heim frá lækni án þess að fá rétta greiningu. Stúlkan er núna komin á lyf og liggur í einangrun á barna­spítalanum. Móðir hennar vonar að lyfin virki en það á eftir að koma í ljós. Hún gagnrýnir þá sem ekki þiggja bólu­setningu og brýnir fyrir fólki að það þurfi að bólusetja börnin sín og endurnýja eigin bólu­setningar, því sjúk­dómurinn getur reynst hættu­legur börnum.

Sjö vikna gömul stúlka var færð í einangrun á barna­spítala Hringsins í gær vegna kíghósta. Stúlkan hefur verið sett á lyf en það á eftir að koma í ljós hvort þau virki. „Það er ekki alveg vitað strax hvort að lyfin virki en við bíðum og vonum,“ segir móðir stúlkunnar, Helena Stef­ánsdóttir. Hún segir að aðeins eitt lyf sé til sem virki á bakteríuna og drepi hana en það hafi ekki áhrif á einkennin.

Það tók rúma viku að greina stúlkuna með sjúk­dóminn sem getur verið lífs­hættulegur ungum börnum. „Einkennin komu fyrst á mánudaginn í síðustu viku og daginn eftir fór hún að hósta. Þá fór ég með hana til barna­læknis á Domus Medica en hann fann ekkert að henni. Svo á föstu­daginn fékk hún fyrsta hósta­kastið þar sem hún blánaði og var alveg að kafna. Ég fór því með hana beint á bráða­móttökuna en aftur vorum við sendar heim með þeim skila­boðum að ekkert alvarlegt amaði að. Hóstinn hélt áfram að versna og í fyrradag fengum við tíma hjá öðrum barna­lækni. Hann sendi hana í röntgen og tók sýni til að athuga hvort hún væri með kíghósta. Mig hafði grunað að hún væri með kíghósta og svo reyndist vera,“ segir Helena.

Helena deildi færslu á Facebook í gær þar sem hún greindi frá málinu og birtir hljóð­upptökur af sárum hósta dóttur sinnar. Þar gagnrýnir hún foreldra sem að kjósa að bólusetja ekki börn sín og setji þannig önnur börn í lífshættu. Börn eru fyrst bólusett við kíghósta við þriggja mánaða aldur og var dóttir Helenar því í sérstakri hættu. „Vill fólk í alvöru taka sénsinn á að barninu þeirra geti liðið svona illa og að það geti smitað aðra sem mega ekki eða eru of ungir til að fá bólu­setningu?“ spyr Helena í færslunni. „Hún liggur enn á spítalnum en hefur ekki tekið neitt svakalegt hóstakast síðan við komum inn í gær.“

Helena brýnir einnig fyrir fullorðnu fólki að endurnýja bólu­setningar sínar en það þarf að gera á tíu ára fresti.

Kíghósti er bakteríu­sýking sem veldur slæmum lang­varandi hósta. Hann er sérstak­lega hættu­legur börnum yngri en sex mánaða þar sem þau hafa þrengri loftvegi en eldri börn og seigt slímið gerir það að verkum að þau eiga erfitt með að ná andanum. Fyrstu einkenni sjúk­dómsins eru allt að tveggja vikna langt kvef með vægum hósta. Eftir það hefst kíghóstinn sem einkennist af endur­teknum hósta­kviðum sem standa þar til lungun eru tæmd af lofti. Við hóstann gengur seig­fljótandi slím upp úr lungunum og algengt er að hósta­kviðurnar endi með uppköstum. „Þegar litla dóttir mín fær hóstaköst verður hún öll stíf eins og grjót, eldrauð í framan, blánar í kringum varir, hún ælir af áreynslu og andar ekki.“ Þannig lýsir Helena hósta­köstum dóttur sinnar í færslu á Facebook.

Sjúklingar með kíghósta geta fengið 10 til 20 og allt upp í 40 hóstaköst á sólar­hring. Þá er það ekki fyrr en eftir sex til átta vikur sem hægt er að sjá örugg merki þess að sjúk­dómurinn sé í rénun.

Embætti Land­læknis deildi þessu myndbandi af barni með kíghósta á vefsíðu sinni: 

Þar segir að útbreiðsla sjúk­dómsins hafi farið vaxandi á síðustu 20 árum. Á árunum í kringum 1930–1940 létust þúsundir manna af völdum sjúk­dómsins, en með tilkomu bóluefnis hefur dregið mjög úr dánar­tíðni af völdum hans. Þrátt fyrir góða þáttöku í bólu­setningum hafa komið upp faraldrar í mörgum löndum hjá full­orðnum og eldri börnum, vegna þess að verndandi áhrif bólu­setningarinnar þverra á nokkrum árum. 

Ungum börnum er sérlega hætt við alvarlegum afleiðingum sýkingarinnar sem geta verið öndunar­stopp, krampar, lungna­bólga, truflun á heila­starfsemi og dauði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár