Ný rannsókn: Leti er til marks um greind

Ný rannsókn rennir stoðum undir kenninguna um að greindir einstak­lingar eyði meiri tíma í leti en þeir sem eru heimskir og hressir.

Eru letingjar
Eru let­ingjar í raun snill­ingar?

Flestir hafa gerst sekir um að hugsa í staðalímyndum. Um kláru nördana sem liggja og lesa bækur á meðan íþrótta­fríkin fara í krumpu­galla og hlaupa í hringi í tilraun til þess að hugsa sem minnst. Í fyrstu virðist þetta vera ósann­gjörn einföldun en nýleg könnun Journal of Health Psychology bendir til þess að þarna sé þó einhvern sannleika að finna.

Todd McElroy, sem stýrði teymi vísinda­manna við Florida Gulf Coast háskóla lagði prófið „Þörf til hugsunar“ [e. Need for Cognition] fyrir fjölda nemenda í tilraun til þess að finna 30 einstaklingar sem sýndu þörf fyrir að hugsa mikið, og svo aðra 30 einstaklinga sem sýndu mikla þörf á því að forðast allt sem krafðist mikillar hugsunar.

Hugsa mikið / gera lítið

Prófið, sem hefur verið til í rúma þrjá áratugi, lætur fólk svara því hversu sammála eða ósammála það er ákveðnum full­yrðingum, eins og til dæmis „Mér finnast verkefni þar sem ég þarf að finna upp á nýjum lausnum mjög ánægjuleg“ og „Ég hugsa aðeins eins mikið og ég þarf“. Þeir 30 þáttakendur sem hugsuðu mest og 30 sem hugsuðu minnst voru svo látnir ganga með hreyfi­skynjara á sér í 7 daga, til þess að mæla líkamlega virkni.

Niður­stöðurnar voru þannig að hugsuðurnir voru mun minna virkir frá mánudegi til föstudags en þeir sem minna hugsa. Munurinn var svo mikill að rann­sakendur sögðu hann „gríðar­legan“ og „mjög mark­verðan.“ Um helgar var hins vegar enginn munur á virkni hópanna.

Hugsa lítið / gera mikið

Niður­stöðurnar um virku dagana kemur heim og saman við aðra rannsókn sem gerð var á tíunda áratugnum sem sýndi fram á að fólk sem hugsar minna er líklegra til þess að láta sér leiðast og að finnast það að leiðast vera ömurleg upplifun. Í rann­sókninni eru leiddar að því líkur að fólk sem hugsar minna þurfi meiri líkamlega virkni til þess að forðast hugsanir sínar.

Þrátt fyrir að úrtakið hafi verið lítið, og að taka verði það inn í niður­stöðuna, varaði McElroy við því að greindir einstaklingar, og latari, þyrftu að hugsa um það að hreyfa sig meira vegna neikvæðra áhrifa sem hinn rólegi lífstíll getur haft í för með sér. Sagði hann að fólk sem sýndi minni líkamlegri virkni ættu að miða að því að hreyfa sig meira til þess að bæta heilsu sína. 

Tímaritið British Psychologial Society vitnaði í könnunina og sagði að vonandi fengi hún hugsandi einstaklinga til þess að verða meðvitaðri um hreyfingar­leysi sitt. „Meðvitund þeirra um hversu litla virkni þau sýna, ásamt meðvitund um afleiðingar þess að hreyfa sig lítið mun vonandi verða til þess að hugsandi fólk finnur meiri hvata til þess að hreyfa sig meira.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár