Þjóðin hefur þegar kosið um atriðin sem Bjarni vill láta breyta í stjórnarskránni

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins, vill þjóðar­atkvæða­greiðslu um að breyta afmörkuðum atriðum í stjórnar­skránni samhliða forseta­kosningunum. Stjórnar­skrár­félagið bendir á að þegar hafi verið kosið um þau og breyt­ing­arnar samþykktar árið 2012.

Vill að kosið verði aftur um stjórnarskrá
Vill að kosið verði aftur um stjórn­ar­skrá Bjarni Bene­dikts­son skrif­aði grein í Morg­un­blaðið þar sem hann lagði til að kosið yrði um afmark­aðar breyt­ingar á stjórn­ar­skránni. Mynd: Pressphotos

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins, vill að kosið verði um afmarkaðar breytingar á stjórnar­skrá Íslands samhliða forseta­kosningum á næsta ári, en Stjórnar­skrár­félagið bendir á að þjóðar­atkvæða­greiðsla um nýja stjórnar­skrá hafi þegar farið fram 20. október 2012, þegar meirihluti kjósenda samþykkti að leggja tillögur stjórnlaga­ráðs til grund­vallar frumvarpi um nýja stjórnar­skrá. 

Bjarni leggur til að kosið verði um að bæta við stjórnar­skrána ákvæðum sem varða umhverfis- og auðlindamál, þjóðar­atkvæða­greiðslum og takmarkað framsal veiði­heimilda.

Kosið um það sama áður

Í ályktun Stjórnar­skrár­félagsins, félags áhuga­fólks um nýja stjórnar­skrá, er bent á að öll þau atriði sé að finna í þeim drögum að stjórnar­skrá sem þegar hafi verið samþykkt í þjóðar­atkvæða­greiðslu. „Þar sem umrætt frumvarp fól í sér nýja stjórnar­skrá, en ekki viðbætur við þá gömlu, er ljóst að hugmyndir Bjarna Benedikts­sonar um framvindu þessa máls eru í andstöðu við vilja meirihluta kjósenda. Ef það er hins vegar einbeittur vilji þingsins að einskorða sig við þessi tilteknu ákvæði, þá er þau öll að finna í þeirri stjórnar­skrá sem þjóðin lýsti yfir­gnæfandi stuðningi við í umræddri þjóðar­atkvæða­greiðslu.“

64 prósent lands­manna samþykktu nýja stjórnar­skrá í kosningunum 2012, en 32 prósent greiddu atkvæði á móti. Auk þess var samþykkt að náttúru­auðlindir, sem ekki eru í einkaeigu, yrðu lýstar þjóðar­eign, að ákvæði yrði um þjóð­kirkju á Íslandi, að persónu­kjör yrði heimilað í meira mæli en nú er, að atkvæði kjósenda alls staðar af landinu myndi vega jafnt í kosningum og að ákvæði yrði í stjórnar­skrá um að tiltekið hlutfall kjósenda gæti knúið fram þjóðar­atkvæða­greiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár