Hannes Hólmsteinn varar við innflytjendum sem „láta greipar sópa“

Háskóla­prófessorinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson varar við því að flótta­menn og innflytj­endur hreinsi úr sjóðum Íslendinga. Atvinnu­þátttaka innflytjenda er jafnhá Íslendinga almennt.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson háskólaprófessor
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son háskóla­pró­fessor Vill aðeins inn­flytj­endur sem vilja vinna.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Háskóla Íslands sem unnið hefur að skýrslu fyrir íslenska ríkið um erlenda áhrifa­þætti hrunsins undan­farin ár, varar við innflytjendum „sem láta greipar sópa um þá sjóði sem við höfum safnað í fyrir okkur sjálf“. 

Hannes, sem var lengi einn mest áberandi hugmynda­fræðingur Sjálfstæðis­flokksins, segist „ekki ætla að una því að vera kallaður rasisti“ vegna viðvarana sinna. Hann var viðmælandi í Bítinu á Bylgjunni í morgun og lýsti þar skoðunum sínum á æskilegum og óæskilegum innflytjendum og kallaði eftir því að 24 tíma reglan yrði tekin upp hér á landi. Í reglunni felst að hælis­umsóknir flótta­manna eru afgreiddar á innan við sólar­hring.

„Aðkomumenn láta greipar sópa“

Hannes telur að í skoðunum sínum um æskilega og óæskilega flótta­menn og öfga­múslima felist enginn rasismi. „Ég verð að játa það að ég ætla ekki að una því þó ég láti í ljós þessar skoðanir að vera kallaður rasisti eða fasisti. Það er ekki neinn fasismi að vilja ekki fá brotamenn til landsins. Öfga­múslima sem vilja segja okkur fyrir verkum og að konur gangi í búrkum. Það er ekki neinn rasismi eða fasimi. Og það er ekki neinn rasismi eða fasismi ef ég segi að velferðar­ríki sem við höfum byggt upp hér í hundrað ár og veitir okkur mikið öryggi, ef það koma aðkomu­menn og láta bara greipar sópa um þá sjóði sem við höfum safnað í fyrir okkur sjálf. Ísland getur ekki leyst vanda heimsins. Við erum lítil fámenn þjóð á hjara veraldar og við höfum komið okkur upp, þrátt fyrir óblíða náttúru, gott land og við eigum að halda því,“ segir Hannes.

Skilgreinir æskilega innflytjendur

Hannes er yfir­lýstur frjáls­hyggju­maður og styður frelsi einstaklingsins. Hann er hlynntur innflutningi fólks, en með þeim skilyrðum að fólkið flokkist undir það sem hann skilgreinir sem „æskilega innflytjendur“.  Hann útskýrði ekki hvernig greina væri hægt á milli æskilegra og óæskilegra innflytjenda, með öðrum hætti en viljanum til að vinna og svo öfgum í trúar­brögðum. 

„En óæskilegu innflytjendurnir eru þeir sem vilja bara fara á velferðar­bætur“

Hannes sagði jafnframt að sér þætti æskilegur innflutningur á fólki til dæmis felast í því að hann gæti farið til Danmerkur og unnið. „Eða ef við hefðum boðið gyðingana velkomna sem komu hérna með fullar hendur fjár og voru duglegir tónlistar­menn og iðnaðar­menn hér fyrir heim­styrjöld. Það eru æskilegu innflytjendurnir. En óæskilegu innflytjendurnir eru þeir sem vilja bara fara á velferðar­bætur og vilja fara að segja okkur hvernig við eigum að hafa heiminn,“ segir Hannes. „Ég er hlynntur frjálsum innflutningi á fólki ef það er á eðlilegum forsendum, það er að segja ef það er fólk sem vill flytja inn til þess að vinna. En á síðustu tímum hafa orðið til velferðar­ríki þannig að fólk sem flytur til Danmerkur og Svíþjóðar fær velferðar­bætur. Svo er til annað sem er öfgamúslima­stefna, þannig að fólk sem að flytur til Hollands, öfga­múslimar, fara skyndi­lega að gefa Hollendingum fyrir­skipanir. Það er svipað og ef þú leigir út á Airbnb herbergi í húsinu og það kemur einhver leigjandi og hann fer að segja þér hvernig þú átt að vera klæddur,“ segir Hannes.

Samkvæmt skýrslu OECD, Efnahags- og framfara­stofnunar Evrópu, frá því í fyrra, er atvinnu­þátttaka innflytjenda á Íslandi afar há. 

84 prósent Íslendinga eru virkir á vinnu­markaði. Í skýrslunni kemur fram að atvinnu­þátttaka innflytjenda er 84 prósent. Meðal­talið í ríkjum OECD er mun lægra, eða 65 prósent.

Gagnrýnir flóttamannaiðnað

Hannes segir að um „óæskilegu flótta­mennina“ sé að verða til iðnaður. „Þeir valda svo miklum erfið­leikum og það verða til svo margir starfs­menn í kringum þá og þeir eru að verja sín störf. Fólk sem er í þessum geira, lögfræðingar og ýmsir umönnunar­aðilar þeir sjá þarna risastórt verkefni og atvinnu­tækifæri fyrir sig.“

„Þeir valda svo miklum erfið­leikum“

Þá kallaði Hannes í útvarps­þættinum eftir því að 24 tíma reglan yrði tekin upp hér á landi. „Við ættum alveg hiklaust að taka upp 24 tíma regluna. Við erum þetta friðsæla land. Alltaf þegar ég kem til þessa lands eftir dvöl erlendis verð ég feginn að vera kominn til þessa friðsæla, örugga griða­staðar og reitar á jörðinni. Það sem við verðum að gera með öllum ráðum er að halda áfram að hafa þetta sem griðastað og friðar­stað í heiminum,“ segir Hannes.

Áður hefur Hannes lýst því yfir að hann vilji að konum sé bannað að bera blæjur. „Auðvitað á ekki að banna konum að bera blæjur, af því að þær séu trúartákn. Það á að banna þeim það, af því að menn eiga ekki að fá að dulbúa sig á almanna­færi, því að þá geta þeir komist undan ábyrgð á verkum sínum,“ skrifaði prófessorinn á Facebook-síðu sína.

Varar við hópi ungra manna

Þá vakti Hannes sérstaka athygli á þjóðerni árásar­manna í Þýska­landi í fyrra.  „Viljum við þetta á Íslandi? Takið eftir því, hvaðan árásar­mennirnir eru,“ skrifaði Hannes á Facebook þar sem deildi frétt um hópárás í Köln í Þýska­landi. Fram kemur í fréttinni að borgar­stjórinn hafi kallað lögregluna til neyðar­fund­ar eft­ir að 80 kon­ur í borg­inni til­kynntu kyn­ferðis­leg­ar árás­ir og rán á ný­ársnótt. Haft er eft­ir hon­um að gerendur séu af ar­ab­ísk­um og norður-afr­ísk­um upp­runa.

Hannes, sem meðal annars hefur kennt stjórnmála­heimspeki við háskólann, hefur látið talsvert að sér kveða í umræðum um flótta­manna- og fjöl­menningarmál. Í pistli sem Hannes birti í september varaði hann við því að Íslendingar tækju á móti „ungum, atvinnu­lausum, ómenntuðum og herskáum körlum, sem munda farsímann í dag, en ef til vill eitthvað verra tæki annað á morgun“. Þá hefur prófessorinn hvatt fólk til að bera saman „lista yfir gyðinga, sem hafa fengið Nóbels­verðlaun, og Araba, sem hafa fengið Nóbels­verðlaun“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár