Haley: Bandaríkin munu ekki gleyma þessum degi

Sendi­herra Banda­ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, Nikki Haley, segir að Banda­ríkin muni ekki breyta ákvörðun sinni. Hún var harðorð í garð þeirra þjóða sem stóðu gegn Banda­ríkjunum.

Nikki Haley, sendi­herra Banda­ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði í ræðu sinni á allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna í dag, að „þessi dagur myndi ekki gleymast“. Hún sagði Banda­ríkin ekki ætla að endur­skoða ákvörðun sína um að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels og að færa þangað sendiráð Banda­ríkjanna.

Eins og greint var frá fyrr í dag, þá greiddi yfir­gnæfandi meirihluti aðildar­ríkja Sameinuðu þjóðanna gegn ákvörðun Banda­ríkjanna í dag, en ályktun þess efnis, sem borin var upp af frumkvæði Egypta, var samþykkt í dag. Samtals greiddu 128 ríki með henni, 9 stóðu með Banda­ríkjunum, að þeim meðtöldum, og 33 voru hlutlaus og 21 þjóð tók ekki þátt í kosningunni.

Á meðal ríkja sem samþykktu voru Bretland, Kína, Frakkland og Þýskaland, en Ísland var einnig í þeim hópi.

Benjamín Netanhayu, forsætis­ráðherra Ísraels, fordæmdi ályktunina en sagði það gleðilegt að sjá margar þjóðar standa utan við samþykkt hennar.

Haley sendi aðildar­ríkjum, þar á meðal Íslandi, bréf þar sem tekið var fram að Donald Trump Bandaríkja­forseti myndi fylgjast með því hvernig þjóðirnar myndu greiða atkvæði.

Hún hefur einnig látið hafa eftir sér, að Banda­ríkin gætu ákveðið að skrúfa fyrir fjárhags­aðstoð við þróunar­aðstoð í ríkjum þar sem hún er nauðsynleg.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utan­ríkis­ráðherra, segir í samtali við RÚV að afstaða Íslands eigi ekki að koma neinum á óvart. „Það er í samræmi við þá stefnu sem við höfum – við styðjum tveggja ríkja lausn og að málefnum Jerúsalem verði fundinn farvegur með sameiginlegri ákvörðun Ísraels og Palestínu­manna,“ segir Guðlaugur Þór í samtali við RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár