Fjarlægði ummæli sín og umræðurnar um þau: „Ég skipti ekki um skoðun“

Theodóra S. Þorsteins­dóttir, þing­flokks­formaður Bjartrar framtíðar, segist þakklát fyrir að umræðan um gagnrýni sína hafi færst yfir á Stundina.

Theodóra S. Þorsteins­dóttir, þing­flokks­formaður Bjartrar framtíðar, segist hafa fjarlægt harðorða yfir­lýsingu um þingmenn stjórnar­andstöðunnar, gagnrýni þeirra á Bjarna Benediktsson og arfleifð vinstri­stjórnarinnar af Facebook vegna þess að hún lítur svo á að umræðan um málið hafi færst yfir á Stundina. Þetta kemur fram í svari hennar við fyrir­spurn blaðsins. Fjörugar umræður sköpuðust undir færslu Theodóru þar sem hún var krafin svara við full­yrðingum sínum, m.a. þeirri stað­hæfingu að fyrirtæki hefðu verið rekin í gjaldþrot með ólögmætum hætti og spurð hvaða þingmenn hún væri að gagnrýna. Allar umræðurnar eru horfnar eftir að Theodóra fjarlægði færslu sína.

Á meðal þess sem fram kom í færslu Theodóru var gagnrýni á stjórnar­andstöðuna fyrir að „leggja ofuráherslu á hvort“ Bjarni Benediktsson fyrr­verandi fjármála­ráðherra hefði setið á skýrslu um skiptingu höfuðstóls­lækkunar húsnæðis­lána fram yfir kosningar. Fyrir liggur að lokadrög að skýrslunni voru tilbúin í júní 2016, vinnslu hennar lokið fyrir kosningarnar í október 2016 en skýrslan þó ekki birt fyrr en 18. janúar síðastliðinn að frumkvæði Benedikts Jóhannessonar, nýs fjármála- og efnahags­ráðherra. Skýrslan varpar ljósi á það hvernig stór hluti af þeim fjármunum sem varið var til höfuðstóls­lækkunar verð­tryggðra húsnæðis­lána á síðasta kjör­tímabili rann til stóreigna­fólks.

Theodóra telur að sömu aðilar og gagnrýna Bjarna Benediktsson fyrir að hafa setið á skýrslunni fram yfir kosningar – en slík gagnrýni hefur einkum heyrst frá þing­mönnum Vinstri grænna, Pírata og Samfylkingarinnar – séu þannig að „komast hjá því“ að ræða um innihald skýrslunnar. Í færslu sinni kallaði hún eftir uppgjöri við þá stefnu sem var rekin í stjórnartíð Samfylkingarinnar og Vinstri grænna að því er varðar skuldamál heimila og fyrir­tækja. „Sorglegt að horfa upp á þá sem kusu með leið­réttingunni eða sátu hjá komast hjá því að ræða innihald skýrslunnar og leggja ofuráherslu á hvort ráðherra hafi setið á henni yfir kosningar,“ skrifaði Theodóra. Sem kunnugt er greiddu nær allir þingmenn Vinstri grænna, Samfylkingarinnar og Pírata atkvæði gegn frumvarpi um höfuðstóls­lækkun verð­tryggðra húsnæðis­lána árið 2014 en Framsóknar­flokkurinn, sem nú er í stjórnar­andstöðu, stóð að málinu ásamt Sjálfstæðis­flokknum. 

Theodóra fullyrti að Samfylkingin hefði enn tækifæri til að leiðrétta þau mistök að hafa tekið sér stöðu með fjármála­kerfinu gegn skuld­settum heimilum. „Fólk er enn að drukkna í skuldar­feni [sic] og það er óuppgert tjón hundruða heimila vegna nákvæmlega þessara mistaka sem Samfylkingin gerði. Væri fallegt að sjá Vinstri græna fara í sambærilega innri skoðun og jafnvel fleiri flokka. Þar fyrir utan þurfum við uppgjör á þeim úrræðum sem flokkarnir buðu upp á eftir banka­hrunið. Ein skýrsla um "Leið­réttinguna" dugar ekki. Sorglegt að horfa upp á þá sem kusu með leið­réttingunni eða sátu hjá komast hjá því að ræða innihald skýrslunar [sic] og leggja ofuráherslu á hvort ráðherra hafi setið á henni yfir kosningar. Skýrsla um þau fyrirtæki sem rekin voru í gjaldþrot með ólögmætum hætti væri gagnleg, heildar­skýrsla um öll þau úrræði sem í boði voru er nauðsynleg“ skrifaði hún. 

Stundin sendi Theodóru tölvupóst og spurði hvers vegna hún hefði fjarlægt textann. „Nei ég skipti ekki um skoðun enda hafa afleiðingar hrunsins verið í mínu fangi í mörg ár. Hins vegar þá færðist umræðan yfir á Stundina og er ég þakklát fyrir það. Nauðsynlegt að vekja athygli á hruninu því fjölmargir eru enn að glíma við afleiðingar,“ sagði hún í svari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár