Afdrifarík barátta í Georgíuríki

Demó­kratar virðast hafa hrifsað bæði öldunga­deildar­þingsætin af repúblikönum í Georgíu og þar með stjórn yfir öllum þremur örmum alríkis­valdsins í Banda­ríkjunum. Repúblikanar bölva sumir Trump, en demó­kratar þakka Stacey Abrams.

Stacey Abrams hefur fengið mikið lof í dag, en hún og margir aðrir hafa barist fyrir kosningaþátttöku minnihlutahópa í Georgíu undanfarin ár.
Stacey Abrams hefur fengið mikið lof í dag, en hún og margir aðrir hafa barist fyrir kosn­inga­þátt­töku minni­hluta­hópa í Georgíu und­an­farin ár. Mynd: EPA

Demó­kratar virðast hafa náð að tryggja sér öldunga­deildar­þingsætin tvö sem keppst var um í kosningunum í Georgíu í gær. Þegar hafa sumir bandarískir kosninga­vaktarar og fjöl­miðlar lýst yfir sigri bæði Raphael Warnock og Jon Ossoff. Sjálfir hafa demó­kratarnir einnig báðir lýst yfir sigri.

Flestir fjöl­miðlar vestanhafs telja þó enn of mjótt á munum til að slá sigri Ossoff föstum, en hafa þarf sigur með meira en 0,5 prósentu­stiga mun til þess að ekki sé farið sjálf­krafa í endur­talningu atkvæða í ríkinu.

En það þarf eitthvað mikið – og verulega óvænt – að eiga sér stað svo hann hafi ekki betur gegn öldunga­deildar­þingmanni Repúblikana­flokksins, David Perdue, þegar upp er staðið.

Ossoff er með forystu sem fer stækkandi, þar sem þau fáu atkvæði sem á eftir að telja eru talin líklegri til að falla honum í skaut en repúblikananum, þegar horft er á samsetningu kjósenda­hópsins sem stendur á bak við hin ótöldu atkvæði.

Báðar deildir þingsins og framkvæmdavaldið í höndum demókrata

Ef niður­staðan verður þessi þýðir það að Demókrata­flokkurinn mun stjórna öldunga­deild Banda­ríkjaþings með odda­atkvæði Kamölu Harris vara­forseta, en hvor flokkur um sig mun hafa 50 þingmenn. Demókrata­flokkurinn er einnig með meirihluta í fulltrúa­deildinni og tekur síðan við forseta­embættinu 20. janúar.

Ljóst er að með báðar þing­deildirnar undir stjórn demókrata verður auðveldara fyrir Joe Biden að koma hlutum á fyrsta ári sínu sem forseti. Hann mun ekki þurfa að takast á það verkefni að leita mála­miðlana gagnvart repúblikönum í öldunga­deildinni um ýmsar áherslur sínar og skipan embættis­manna á borð við dómara. Þessi staða, sem er óvænt, gjör­breytir myndinni sem blasti við eftir kosningarnar í nóvember.

Repúblikana­flokkurinn á nú í miklum vanda og telja margir að kenna megi forsetanum Donald Trump að svo fór sem fór í Georgíu. Í frétt Politico kenna nokkrir nafn­lausir heimildar­menn innan flokksins honum um hvernig úrslitin virðast vera.

Síendurteknar stað­lausar og hraktar full­yrðingar hans um kosninga­svik, í því ríki og öðrum, eru af ýmsum taldar hafa spillt fyrir sigur­vonum Repúblikana­flokksins í kosningum gærdagsins í Georgíu.

Stacey Abrams þakkað

Árangur demókrata í Georgíu er afar merki­legur, en ríkið sveiflaðist naumlega yfir til demókrata í forseta­kosningunum í nóvember í fyrsta sinn síðan 1992 og hefur nú kosið sér fyrstu öldunga­deildar­þingmennina úr röðum demókrata á þessari öld. Rautt ríki er orðið blátt. Eða fjólu­blátt sveiflu­ríki, hið minnsta.

Árangurinn má að margra mati þakka baráttu­konunni Stacey Abrams og ýmsum öðrum sem hafa unnið ötullega að því undan­farin ár að fjölga kjósendum úr minnihluta­hópum á kjörskrá ríkisins. Abrams er hluti af grasrótar­hreyfingum sem hafa undan­farinn áratug og rúmlega það tekið sig saman um að láta raddir svartra kjósenda í Georgíu heyrast.

Hún bauð sig fram til ríkis­stjóra Georgíu árið 2018 og tapaði naumlega og búist er við að hún reyni aftur á framboð til þess embættis árið 2022.

Frá tapi Adams árið 2018 og fram að forseta­kosningunum í nóvember síðastliðnum bættust um 800 þúsund nýir kjósendur við kjörskrá ríkisins, sem telur í heild 7,7 milljónir manna.

Munurinn á atkvæða­fjöldanum í báðum kosningum gærdagsins hleypur á örfáum tugum þúsunda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár