Kaupþingsmenn nota Guðmundar- og Geirfinnsmál í áróðursskyni

„Flest bendir til þess að stemmningin í samfélaginu hafi haft áhrif á niður­stöðu dómstóla í báðum málum,“ segir í Facebook-færslu Dagsljóss, félags fyrr­verandi Kaup­þingmanna. Al-Thani málið er borið saman við Guðmundar- og Geirfinnsmál.

Dagsljós, félag sakborninga í Al Thani-málinu svonefnda, ber Guðmundar- og Geirfinnsmál saman við Al-Thani málið í Facebook-færslu. Tilefnið er niður­staða endur­upptöku­nefndar sem kynnt var í gær um að heimila að Guðmundar- og Geirfinnsmál yrðu tekin upp að nýju.

„Málin eru gjörólík í alla staði en eiga þó það sameiginlegt að dómstóll götunnar hafði dæmt í báðum þessum málum áður en þau komu fyrir dóm,“ segir í færslu Dagsljóss. „Flest bendir til þess að stemmningin í samfélaginu hafi haft áhrif á niður­stöðu dómstóla í báðum málum eins og nú hefur í raun verið staðfest.“

Dagsljós var sett af stað í fyrra sem samstarfs­verkefni fyrr­verandi Kaupþings­manna, þeirra Hreiðars Más Sigurðs­sonar, Sigurðar Einars­sonar, Magnúsar Guðmunds­sonar og Ólafs Ólafs­sonar sem allir hlutu þunga dóma í Al-Thani málinu. Hæstiréttur sakfelldi þá fyr­ir umboðs­svik og markaðsmis­notk­un en þeir kærðu niður­stöðuna til Mann­réttinda­dómstóls Evrópu sem hefur nú málið til athugunar. Freyr Einarsson, fyrr­verandi yfirmaður sjónvarps, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmál

FréttirGuðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd forsætis­ráðuneytisins en hafnar því að lögregla hafi beitt harðræði

Guðjóni Skarp­héðinssyni, einum hinna sýknuðu í Guðmundar- og Geirfinns­málum, er sjálfum kennt um rangan dóm Hæstaréttar yfir sér í greinar­gerð setts ríkis­lögmanns, Andra Árnasonar, sem hafnar því að rann­sakendur hafi brotið með refsiverðum hætti gegn Guðjóni. Andri hafði samband við aðstand­endur í vor „til að skoða tiltekna sátta­möguleika fyrir ráðuneytið“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár