Kynlífsdúkkur og vinnusamir smitberar

Hatur gegn fólki af asískum uppruna hefur risið í Banda­ríkjunum upp á síðkastið, en það á sér djúpar rætur.

Frá Chinatown í New York
Frá Chinatown í New York Banda­ríkja­menn af asískum upp­runa ganga fram hjá aug­lýs­inga­skilti for­seta­fram­bjóð­and­ans fyrr­ver­andi, Andrews Yang, í Chinatown. Mynd: SPENCER PLATT / GETTY IMAGES NORTH AMERICA / Getty Images via AFP

Haturs­glæpum gegn fólki af asískum uppruna hefur fjölgað gífurlega í Banda­ríkjunum síðustu misseri og jafnvel marg­faldast í sumum borgum. Margir vilja kenna Donald Trump og Covid-faraldrinum um ástandið en fordómar gegn asísku fólki eiga sér langa sögu og djúpar rætur í bandarísku samfélagi. Konur eru meira en tvöfalt líklegri til að verða fyrir slíkum fordómum.

Þann 29. september árið 1854 birti bandaríska dagblaðið New York Tribune ritstjórnarpistil þar sem varað var við þeim mikla fjölda kínverskra farand­verkamanna sem sæktust eftir því að koma til landsins. 

Á þessum tíma var mikill hagvöxtur í Banda­ríkjunum og innflytjendur frá öllum heims­hornum flykktust þangað í auknum mæli. Grunnurinn að efnahags­veldi landsins var á sama tíma lagður með fjár­festingum í innviðum á borð við járn­brautar­teina. Án slíkra samgöngu­leiða var óttast að ójöfnuður og sundrung myndi ógna samstöðu ríkjanna – eins og átti raunar eftir að koma á daginn nokkrum árum síðar þegar borgara­stríð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár