Merkel vill nýjar kosningar frekar en minnihlutastjórn

Stjórnar­kreppa kom upp úr kössunum í kosningunum í Þýska­landi í september og sér ekki fyrir endann á henni.

Angela Merkel, kanslari Þýska­lands og leiðtogi Kristilegra demókrata, vill frekar að kosið verði að nýju en að minnihluta­stjórn verði mynduð í Þýskaland.

Frjáls­lyndi flokkurinn sleit stjórnar­viðræðunum í um helgina, og bar því við að algjör trúnaðar­brestur hefði verið á milli Græningja og kristilegra demókrata. Ekki hefði verið hægt að fara lengra með viðræðurnar.

Samtals voru flokkarnir þrír með 393 þingmenn af 709 á þýska þinginu og því nokkuð sterkan meirihluta. Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýsklands, reynir nú að miðla málum og hefur biðlað til stjórnmála­leiðtoga um að sýna sveigjanleika í viðræðunum til að koma á stöðugu stjórnar­fari og ríkis­stjórn sem ferst, að því er fram kemur í umfjöllun BBC.

Flokkur Merkel fékk 33 prósent atkvæða í síðustu kosningum, sem þótti varnar­sigur í ljósi mikils uppgang þjóðernis­sinna í landinu.

Flokk­ur­inn AFD, sem boð­aði aðgerðir gegn straumi flótta­fólks til lands­ins og vilda fækka útlend­ingum í Þýska­landi, fékk um 13 pró­sent fylgi í kosn­ing­unum 94 þing­menn.

Merkel stendur nú frammi fyrir sinni stærstu hindrun, á tólf ára valdatíma sem kanslari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár