Repúblikanar gefast enn og aftur upp

Öldungar­deildar­þingmenn ákváðu að draga til baka frumvarp sitt um breytingu á heilbrigðis­löggjöfinni í Banda­ríkjunum.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Enn og aftur eru Repúblikanar búnir að rekast á vegg í tilraunum sínum til að breyta heilbrigðis­kerfinu í Banda­ríkjunum og afnema hið svonefnda Obamacare.

Öldunga­deildar­þingmenn Repúblikana ákváðu í gærkvöldi að hætta við að ganga til atkvæða um heilbrigðis­trygginga­frumvarp í Banda­ríkjaþingi, en ljóst var að meirihluti var ekki fyrir frumvarpi vegna andstöðu hjá Repúblikunum. Þar fóru fremst í flokki John McCain, öldunga­deildar­þingmaður úr Arizona, og Susan Collins, öldunga­deildar­þingmaður úr Maine.

Þetta er í fjórða sinn sem Repúblikönum mistekst að ógilda núverandi lög, en Donald Trump, Bandaríkja­forseti, hefur ítrekað lofað því að ógilda núgildandi lög.

Ljóst er að þetta er mikið áfall fyrir Repúblikana, að því er fram kemur í umfjöllun Washington Post.

Fjár­laganefnd fulltrúa­deildar Banda­ríkjaþings sagði frá því í gær, að greining hennar benti til þess að frum­varpið hefði lækkað útgjöld til heilbrigðis­mála um þúsund milljarða dala yfir áratug. Þá hefðu um 20 Bandaríkja­manna sem nú eru tryggðir orðið án heilbrigðis­trygginga, einkum tekjulágt fólk og það sem glímir við alvarleg veikindi og ekki með neina heilbrigðis­tryggingu frá vinnu­veitanda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár