„Takk, herra forseti“

Umdeild bók Michael Wolff um Trump kemur út í dag.

Höfundur bókar um Donald J. Trump, Bandaríkja­forseta, Michael Wolff, gefur í dag út bókina Fire and Fury: Inside the Trump White House, sem fjallar um forsetann og aðdrag­anda þess að hann var kjörinn forseti, í nóvember 2016.

Wolff tilkynnti um það í gær að hann hefði flýtt útgáfu bókar sinnar, ekki síst vegna hótana um að lögmenn forsetans vildu fá lögbann á útgáfuna.

Kom krafan fram eftir að greint var frá viðtali við fyrr­verandi ráðgjafa forsetans, Steve Bannon, sem sagði að Donald Trump Jr., sonur forsetans, væri „land­ráðamaður“ þar sem hann hefði fundað með rússneskum lögfræðingum og embættis­mönnum.

Í bókinni kemur meðal annars fram að Trump og allt helsta bakland hans hafi alls ekki búist við því að vinna kosningarnar, og að í raun hafi Trump ekki viljað vinna. Jarad Kushner, tengda­sonur forsetans, er sagður hafa verið hinn eiginlegi stjórn­andi framboðs forsetans og beitt öllum brögðum sem til voru í bókinni til að reyna að hafa betur. Þar á meðal að vera í virku sambandi við Rússa, sem síðan beittu tölvu­árásum til að hafa árás á kosningarnar.

Samkvæmt Washington Post var Trump æfur þegar fréttirnar af ummælum Bannons birtust, og höfðu lögmenn hans í kjölfarið samband við Wolff og hótuðu málsóknum. Auk þess sendu þeir skilaboð til Bannons og sögðu hann hafa rofið trúnað.

Í færslut á Twitter síðu sinni þakkar Wolff forsetanum fyrir, og segir að útgáfu bókarinnar hafi verið flýtt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár