Endanleg niðurstaða kynnt Gísla og Sigríði á morgun

Tveir tölvu­póstar frá lögreglunni á Suðurnesjum bárust Gísla Frey. Fékk yfirheyrslu­skýrslu sem hann eyddi síðar úr tölvunni.

Senn styttist í niður­stöðu athugunar Persónu­verndar á samskiptum Sigríðar Bjarkar Guðjóns­dóttir, þáverandi lögreglu­stjóra Suðurnesjum, og Gísla Freys Valdórs­sonar, þáverandi aðstoðar­manns Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur innan­ríkis­ráðherra. Næsti stjórnar­fundur Persónu­verndar er fyrir­hugaður á morgun, miðvikudag, en stofnunin hefur verið með umrædd samskipti til athugunar síðan upplýst var að Sigríður Björk og Gísli Freyr hefðu verið í síma­samskiptum sama dag og fjöl­miðlar birtu fréttir sem byggðu meðal annars á upplýsingum frá lögreglu­embættinu á Suðurnesjum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár