Samningar við Starfsgreinasambandið langt komnir – Reynt að fá VR um borð

Verið er að reyna að klára gerð kjara­samninga við Starfs­greina­sambandið um 20 til 40 þúsund króna launa­hækkanir, auknar starfs­þrepa­greiðslur og flýtingu á útgreiðslu hagvaxtar­auka. Samningar eiga að gilda út janúar 2024.

Vilhjálmur Birgisson er formaður Starfsgreinasambands Íslands.
Vil­hjálmur Birg­is­son er for­maður Starfs­greina­sam­bands Íslands. Mynd: Skjáskot/RÚV

Viðræður Samtaka atvinnu­lífsins og Starfs­greina­sambandsins um gerð kjara­samninga eru á loka­metrunum. Umræddur samningur á að gilda út janúar 2024 og yrði því til skemmri tíma en vant er þegar kjara­samningar eru gerðir.

Heimildir Kjarnans herma að unnið sé að því öllum árum að fá VR, stærsta stéttar­félag landsins, að borðinu en það sleit samningum við Samtök atvinnu­lífsins í síðustu viku. Þrátt fyrir þau slit mætti Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og samninga­nefnd félagsins á fund hjá ríkis­sátta­semjara í gær ásamt fulltrúum Lands­sambands íslenskra verzlunarmanna og Starfs­greina­sambandsins. Sá fundur stóð í þrettán tíma, og lengur en til stóð upphaf­lega.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfs­greina­sambandsins, og Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, svöruðu ekki símtölum blaða­manna Kjarnans við vinnslu fréttarinnar.

Fjögur prósent hækkun með 40 þúsund króna þaki

Samkvæmt heimildum Kjarnans hefur Starfs­greina­sambandið samþykkt í öllum megin­atriðum að semja um fjögurra prósenta launa­hækkun í samningum sem eiga að gilda til loka janúar 2024. Hækkunin á að vera með 20 þúsund króna gólfi, þannig að enginn fari undir þá upphæð í hækkun, og 40 þúsund króna þaki, þannig að enginn fari yfir þá upphæð. Til viðbótar koma starfs­aldurs­þrepa­hækkanir sem geta í mesta lagi verið 12 þúsund krónur á mánuði en eru að meðaltali um átta þúsund krónur á mánuði.

Þá hafa átt sér stað viðræður um að flýta útgreiðslu hins svokallaða hagvaxtar­auka, sem þó er ekki hluti af yfir­standandi kjara­samnings­viðræðum heldur eitthvað sem samið var um í lífs­kjara­samningunum í apríl 2019. Hann á að greiðast út frá 1. maí 2023, en hann er um 13 þúsund krónur á mánuði. Kjarninn hefur heimildir fyrir því að Samtök atvinnu­lífsins hafi boðið að flýta hagvaxtar­aukanum til 1. mars en að því hafi verið hafnað. Vilji Starfs­greina­sambandsins sé að flýta honum til allt að 1. nóvember 2022.

Efling, sem lagt hefur fram tilboð til Samtaka atvinnu­lífsins um 56.700 króna flata krónutölu­hækkun á öll laun og 15.000 króna framfærslu­uppbót til viðbótar fyrir utan útgreiðslu hagvaxtar­auka fyrir samning út janúar 2023, er ekki hluti af þessum viðræðum.

Í frétta­tilkynningu sem Efling sendi frá sér í gærmorgun sagði að samninga­nefnd félagsins teldi önnur stéttar­félög hafa gert mistök með því að fallast á aðferða­fræði prósentu­hækkana í viðræðum við Samtök atvinnu­lífsins. „Tillögur hafa verið til umræðu þar sem gert er ráð fyrir tvöfalt meiri hækkunum til hátekjuhópa en til láglaunafólks.“

Niðurlægður þrisvar á sólarhring

Ragnar Þór sagði í samtali við Kjarnann síðastliðinn föstudag, í kjölfar þess að viðræðum var slitið, að launafólk hefði „verið nið­ur­lægt þrisvar á rúmum sól­ar­hring. Fyrst af seðla­banka­stjóra, svo af fjár­mála­ráð­herra og loks af Sam­tökum atvinnu­lífs­ins.“

Þar vísaði hann í að ákvörðun Seðla­banka Íslands um að hækka stýri­vexti á mið­viku­dag, og orð Ásgeirs Jóns­sonar um að ástæður þeirrar hækk­unar væri eyðsla heim­il­anna, hefði sent kjara­við­ræður á mjög við­kvæman stað. Í kjölfarið hefði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra boðað aðila vinnu­mark­að­ar­ins á fund til að reyna að draga úr spenn­unni sem hafði mynd­ast. „Fjár­mála­ráð­herra kemur svo nán­ast strax í kjöl­farið með yfir­lýs­ingu á Pen­inga­mála­fundi Við­skipta­ráðs þar sem hann tekur nán­ast undir hvert orð seðla­banka­stjóra og segir að við þurfum að vakna. Hér sé vanda­málið fyrst og fremst kröfur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar. Þegar til­boð Sam­taka atvinnu­lífs­ins um skamm­tíma­samn­ing bætt­ist við var alveg ljóst að við gætum ekki dvalið við þetta leng­ur. Ég var með umboð til að slíta við­ræðum og nýtt það umboð. Ég fund­aði svo með samn­inga­nefnd­inni í morg­un og þar er algjör ein­hugur um þessa ákvörðun. Hún er tekin af yfir­vegun og upp­lýstu mati á stöð­unni í hag­kerf­in­u.“

Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að að Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafi boðið VR og Starfs­greina­sambandinu að lág­marki 17 þús­und krónur ofan á launa­taxta og að hámarki 30 þús­und krónur í launa­hækk­anir í samn­ingi sem átti að gilda í 14 mán­uði, eða út janúar 2024. Matið fyrir helgi var að kostn­að­ar­hækk­anir heim­ila lands­ins vegna auk­innar greiðslu­byrði lána, hækk­ana á verði á vöru, þjón­ustu og gjöldum vegna verð­bólgu, sem nú er 9,3 prósent, og hækk­ana sé langt umfram þær töl­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár