„Ég ræddi þetta mál við Breka Karlsson“

Menningar- og viðskipta­ráðherra segir við Kjarnann að hörð gagnrýni úr ranni Neytenda­samtakanna á skipan nýs starfs­hóps um stofnana­umgjörð samkeppnis- og neytenda­mála hafi komið sér á óvart.

Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna og Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.
Breki Karlsson for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna og Lilja Alfreðs­dóttir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Samsett

Lilja Alfreðs­dóttir menningar- og viðskipta­ráðherra segir að hörð gagnrýni stjórnar Neytenda­samtakanna á skipan nýs starfs­hóps sem á að skoða breytingu á stofnana­umgjörð samkeppnis- og neytenda­mála hér á landi hafi komið sér á óvart.

Hún segist hafa rætt við Breka Karlsson formann Neytenda­samtakanna um fyrir­hugaða skipan starfs­hópsins og hann hafi ekki sett fram þær athuga­semdir þá sem síðar hafa komið fram.

Í ályktun sem stjórn Neytenda­samtakanna sendi frá sér í vikunni sagði að það væri „óá­sætt­an­legt“ að fulltrúi atvinnu­lífs fengi sæti í nefndinni, en enginn fulltrúi neytenda. Svanhildur Hólm framkvæmda­stjóri Viðskipta­ráðs Íslands er einn þriggja fulltrúa í nefndinni.

Taldi stjórnin að með þessari skipan væri horft „fram hjá neyt­endum líkt og sam­keppn­is- og neyt­enda­mál komi þeim ekki við“ og gerði stjórn Neytenda­samtakanna kröfu um sæti við borðið „til að tryggja að raddir og sjón­ar­mið neyt­enda komi fram“.

Breki hafi verið upplýstur og ekki gert neinar athugasemdir

Í samtali við Kjarnann kvaðst Lilja endilega vilja bregðast við þessari gagnrýni frá stjórn Neytenda­samtakanna.

„Nú er það svo að ráðuneytið er að stórauka samvinnu við Neytenda­samtökin. Það vill þannig til að ég ræddi þetta mál við Breka Karlsson og sagði honum að nefndin yrði frekar fáliðuð, þar sem hún væri að fjalla ekki almennt um neytendamál, heldur að fjalla um stofnana­umgjörð, eins og kveður á um í stjórnar­sáttmálanum,“ segir Lilja.

Auk þess segir hún að Breki hafi verið „algjör­lega upplýstur“ um það að nefndin yrði „í nánu samstarfi við samtökin“ þrátt fyrir að eiga ekki mann við borðið.

„Hann gerði enga athugasemd við þetta þegar við fórum yfir þetta á sínum tíma. Þannig að viðbrögð hans hafa komið mér á óvart og ég held ég geti fullyrt það að samvinna og samstarf við Neytenda­samtökin sé með allra mesta móti,“ segir Lilja við Kjarnann.

Starfs­hóp­ur­inn sem um ræðir var skip­aður af Lilju 24. ágúst. Þor­geir Örlygs­son, fyrr­ver­andi for­seti Hæsta­rétt­ar er for­mað­ur hópsins og Ang­an­týr Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri stjórn­sýslu- og fjár­mála­sviðs Vest­manna­eyjabæjar situr einnig í honum, ásamt Svanhildi Hólm.

Meg­in­mark­mið hóps­ins, sem á að skila til­lögum til ráð­herra fyrir 1. febr­úar 2023, er að finna leiðir til að styrkja sam­keppni inn­an­lands, tryggja stöðu neyt­enda betur í nýju umhverfi við­skipta og efla alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni íslensks atvinnu­lífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár